133. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2006.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

374. mál
[23:57]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ætla rétt aðeins að vísa til þess sem stendur í nefndarálitinu. Það kemur fram hér, með leyfi forseta:

„Í því frumvarpi sem hér liggur fyrir er lagt til að við 3. mgr. 36. gr. verði bætt ákvæði þess efnis að í þeim tilvikum er bakábyrgðaraðili lífeyrissjóðs greiðir inn á skuldbindingu sína við sjóðinn með verðbréfum skv. 1. tölul. 1. mgr. ... sem ekki eru skráð á skipulegum markaði þá skuli sjóðnum heimilt að eiga þau bréf, óháð framangreindri takmörkun. Er hér um almenna breytingu að ræða og markmið hennar er að bakábyrgðaraðili lífeyrissjóðs geti greitt í sjóðinn. Tilefnið er einkum kaup ríkissjóðs á hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun.“

Síðan vil ég vísa í þessu sambandi til þess að þegar fjallað var um þetta mál í borgarráði óskuðu fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að fá svör frá Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar og bentu á, eins og hér segir í þessu bréfi, með leyfi forseta:

„Athygli vekur að greiðsla til Reykjavíkurborgar verði á formi skuldabréfs með breytilegum vöxtum en ekki föstum vöxtum, eins og lögð hefur verið þung áhersla á af hálfu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar. Þetta getur gert að verkum að bréfin verði illseljanleg án verulegra affalla og getur án efa haft áhrif á fjárstýringu sjóðsins ef viðunandi sala tekst ekki.“

Síðan var óskað eftir formlegri umsögn Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar um þessi atriði og þar kemur einmitt fram, án þess að ég ætli að lesa upp það bréf, virðulegi forseti, að tilefni þessarar fyrirspurnar væri ákvæði í samningi um kaup íslenska ríkisins á eignarhluta Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun með útgáfu skuldabréfs sem megingreiðslu á andvirði Landsvirkjunar með þar til greindum eiginleikum en samningur þessi var undirritaður þann 1. nóvember með fyrirvara um samþykki borgarráðs.

Í svari frá lífeyrissjóðnum við þessum fyrirspurnum kemur fram hér, sem ástæða er til að vekja athygli á, að þeir eiginleikar skuldabréfanna sem sjóðurinn vill gagnrýna fyrst og fremst eru að þeir bera breytilega vexti og hafa því ekki þekkt greiðsluflæði. Síðan kemur fram að flestir greiningaraðilar telja að líkurnar á að vextir verði lægri en 3% mun meiri eftir fimm ár en að þeir verði yfir 4%. Fari svo að vextir fari í 3% eftir fimm ár þá hefur verð bréfanna lækkað um rúma 2 milljarða kr. miðað við að þeir hefðu verið fastir.

Síðan segir hér, með leyfi forseta.:

„Það má einnig orða það þannig að það hlutverk stjórnarinnar að móta sjóðnum fjárfestingarstefnu með það að markmiði, eins og kveðið er á um, að ávaxta fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu, hafa verið stórlega skert.“

Síðan kemur, með leyfi forseta:

„Álitamál er hvort lífeyrissjóðnum sé heimilt að taka við þessum skuldabréfum þar sem þau hafa ekki verið skráð á skipulagðan markað ...“

Loks segir, með leyfi forseta:

„Þar sem skuldabréfin bera breytilega vexti, ber að lækka virði þeirra í tryggingarfræðilegu mati, skv. reglugerð um ársreikninga lífeyrissjóða. Lækka á síðustu þekkta vexti sem skuldabréfin bera um 1,5% áður en þau eru núvirt. Hafi virði bréfanna verið um 23,9 milljarðar króna með 4,16% vöxtum þá ber að lækka skuldabréfin í tryggingarfræðilegu mati í um 20,4 milljarða eða um ca. 3,5 milljarða. Þarna er um varfærnislega reglu að ræða sem undirstrikar enn og aftur hversu verð þessara bréfa er óvirt.“

Þarna kemur fram raunverulega skýringin á því hvernig þeir líta á þessi bréf og ástæða er til að geta þess hér þegar við ræðum málið við 2. umr.