133. löggjafarþing — 46. fundur,  9. des. 2006.

ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

376. mál
[00:06]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., frá meiri hluta fjárlaganefndar. Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneytinu.

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem varða tímasetningar á tilteknum ráðstöfunum söluandvirðis Landssíma Íslands hf. frá því sem áður var ákveðið með lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

Þannig er lagt til að samtals 2.400 millj. kr. ráðstöfun verði færð af árinu 2007 til ársins 2008 og að samtals 1.000 millj. kr. ráðstöfun verði færð af árinu 2007 til ársins 2006.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir þetta nefndarálit rita hv. þm. Birkir J. Jónsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Kjartan Ólafsson, Þórdís Sigurðardóttir, Sigríður A. Þórðardóttir og Jón Kristjánsson.