133. löggjafarþing — 47. fundur,  9. des. 2006.

ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

376. mál
[10:58]
Hlusta

Jóhann Ársælsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Það er afar óþægilegt að þurfa að taka afstöðu til þessa máls eins og það liggur fyrir. Verið er að fjalla um mál þar sem ekki fengust einu sinni upplýsingar um hvað gera ætti við sumt af þeim fjármunum sem hér eru á ferðinni. Það á t.d. við um 3. gr. frumvarpsins þar sem lagðir eru fjármunir til Fjarskiptasjóðs fyrir árið sem nú er að líða. Við stöndum hér í dag, 9. desember, og erum að taka afstöðu til málsins. Það á þá væntanlega að eyða hálfum milljarði frá þessum degi eða þegar búið verður að staðfesta þessi lög og fram að áramótum. Það fengust engar upplýsingar um það hvernig fara ætti með þessa peninga.

Síðan er líka ástæða til að vekja athygli á því að verið er að flytja fjármuni af komandi ári yfir á næsta ár þar á eftir og það liggur ekkert fyrir um að hægt verði að nýta þá, t.d. í Sundabrautina, með þeim hætti sem þarna er lagt til. Það fengust heldur engar upplýsingar um hvers konar áætlanir væru á bak við þetta. Vinnubrögðin á bak við þetta frumvarp með endemum. Fjármunir eru skornir niður af framkvæmdum sem átti að fara í, t.d. á Vestfjörðum og Norðausturlandi, og fluttir yfir á næsta ár á eftir án þess að það liggi fyrir með hvaða hætti framkvæmdaáætlun eigi að vera gagnvart þessum verkefnum. Það er ríkisstjórninni algjörlega til skammar að standa svona að málum eins og hér er lagt upp með. (Gripið fram í: Það er sami lokadagur.)