133. löggjafarþing — 47. fundur,  9. des. 2006.

ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

376. mál
[11:00]
Hlusta

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Það hefur verið mikil umræða undanfarin dægur um samgöngumál og menn hafa gerst stórtækir í loforðum. Fyrir því hefur farið hæstv. samgönguráðherra og ýmsir stjórnarþingmenn. Það hefur verið umræða um Suðurlandsveg og nú í morgun um Sundabraut. Menn tala fullum fetum um það að milljarða- og milljarðatugaframkvæmdir eigi að verða hér í samgöngumálum á næsta ári og næstu árum. Engu að síður er veruleikinn sá að hér er verið að leggja til við þingið að fresta fjárveitingum til samgöngumála upp á á þriðja milljarð kr. Það er ekki mikið samræmi í þessum málflutningi. Það er ekki hátt á þessu risið.

Það er augljóst mál að ef þessir fjármunir verða til ráðstöfunar til samgöngumála á næsta ári er nóg pláss fyrir þá. Það eru næg verkefni til að vinna og það má þá leysa með tilfærslu milli ára og lána á milli verka eftir því hver eru tilbúin til framkvæmda og hver ekki. Það er hrein sýndarmennska að tala eins og að þetta hafi engin áhrif á framkvæmdir í samgöngumálum á næstu missirum (Forseti hringir.) að fá ekki þennan gjörning þannig að auðvitað á að samþykkja hér tillögu stjórnarandstöðunnar.