133. löggjafarþing — 47. fundur,  9. des. 2006.

Póst- og fjarskiptastofnun.

397. mál
[11:07]
Hlusta

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Hér er eitt af þessum litlu frumvörpum sem rifin eru í gegnum hið háa Alþingi á síðustu dögum fyrir jólahlé. Það var fjallað um það á einum degi, einum nefndarfundi í samgöngunefnd, og svo var það tekið út á einhvers konar míkrófundi í nefndinni, í fyrradag líklega. Hér er um að ræða skattlagningu á fjarskiptafyrirtækin, breytingar á gjaldtöku. Ástæða þess að við í Samfylkingunni greiðum atkvæði gegn þessari grein og sitjum hjá við aðrar greinar er sú að þeim sem eiga að greiða þessi gjöld í ríkissjóð og til Póst- og fjarskiptastofnunar hefur ekki verið kynnt sú kostnaðargreining, sú markaðsgreining og kostnaðargreining sem liggur þar til grundvallar. Þetta eru einfaldlega óviðunandi vinnubrögð, frú forseti, ekki síst í ljósi þess að sú greining mun líklega liggja fyrir innan nokkurra daga.