133. löggjafarþing — 48. fundur,  9. des. 2006.

ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

376. mál
[12:15]
Hlusta

Frsm. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Hér kemur til 3. umr. frumvarp til laga um breytingar á lögum um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf. Minni hlutinn í fjárlaganefnd flutti breytingartillögu við 2. umr. þar sem lagt var til að öll 1. gr. yrði felld brott, þ.e. að allur sá niðurskurður upp á 2,1 milljarð kr. eða frestun sem boðuð er í frumvarpinu til samgöngumála, hvort heldur er á höfuðborgarsvæðinu, á norðausturhorni landsins eða á Vestfjörðum, gangi til baka. Sú tillaga hefur verið felld. Þá leyfðum við okkur að flytja aðra breytingartillögu við þetta frumvarp þar sem lagt er til að a.m.k. c- og d-liðir í 1. gr. falli brott, þ.e. að fallið verði frá frestun á 500 millj. kr. fjárframlagi til vega á Vestfjörðum og Norðausturlandi, þ.e. Tröllatunguvegi um Arnkötludal og Norðausturvegi, og peningarnir lánaðir til annarra vegaframkvæmda á þeim landsvæðum sé ekki hægt að nýta þá fjármuni beint til þeirra verkefna sem þeir eru eyrnamerktir til á árinu 2007.

Þessir landshlutar, Norðausturland og Vestfirðir, urðu að lúta því að taka á sig frestun á vegaframkvæmdum í sumar samkvæmt sérstakri ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum. Þetta var ekki aðeins sú aðgerð að fresta framkvæmdum heldur var þetta líka sálræn og táknræn aðgerð gagnvart fólkinu sem býr í þessum landshlutum og var í sjálfu sér ríkisstjórninni til skammar, að mínu viti.

Það er margbúið að lofa íbúum þessa landshluta sem búa við einna verstu vegaframkvæmdir á landinu vegaframkvæmdum á undanförnum árum. Þegar stöðugt er síðan farið á svig við þau loforð og þau jafnvel svikin, er manni nóg boðið. Þess vegna legg ég til, frú forseti, að þingheimur sjái til þess að frestun á þessu lofaða fjármagni til vegaframkvæmda á Vestfjörðum og Norðausturlandi verði a.m.k. dregin til baka.