tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur.
Hæstv. forseti. Að vissu leyti er dapurlegt hve stuttur tími gefst til þessarar umræðu vegna þess að við erum farin að ræða hér um sjálfan grundvöll velferðarþjóðfélagsins og hugmynda okkar um samhjálp og velferð og hvernig að því skuli staðið.
Ég kveð mér hljóðs í andsvari fyrst og fremst til að vekja athygli á þeim harðvítugu árásum sem talsmaður Sjálfstæðisflokksins við þessa umræðu, hv. þm. Pétur H. Blöndal, hefur haft í frammi gagnvart verkalýðshreyfingunni og þá sérstaklega Alþýðusambandi Íslands. Hann segir að verkalýðshreyfingin hafi engan áhuga á því að auka verðmætasköpun í íslensku samfélagi, láti sig fyrst og fremst og eingöngu varða skiptinguna, skiptingu verðmæta.
Í öðru lagi fullyrðir hv. þingmaður að í verkalýðshreyfingunni sé ekkert lýðræði, starf hennar byggi ekki á lýðræðislegum vinnubrögðum.
Í þriðja lagi vil ég vekja athygli á því sem hv. þingmaður sagði um aðkomu Alþýðusambandsins um frumvarp um vaxtabætur. Þar segir hann að Alþýðusambandið hafi engar tillögur lagt fram. Gagnrýni Alþýðusambandsins hefði fyrst og fremst falist í því að hafa ekki komist nægilega vel að borði með fulltrúum ríkisvaldsins og fjármálaráðuneytisins með aðkomu að gögnum sem gerði mönnum kleift að setja fram kröfur og hugmyndir um upphæðir. Út á þetta hefði (Forseti hringir.) gagnrýni Alþýðusambandsins fyrst og fremst gengið.