133. löggjafarþing — 48. fundur,  9. des. 2006.

vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.

416. mál
[15:31]
Hlusta

Sæunn Stefánsdóttir (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vildi í þessu andsvari aðeins ræða um þau sjónarmið sem tekist er á um í umræðunni, annars vegar um einfalt og gegnsætt skattkerfi og hins vegar lýðheilsusjónarmið sem hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni, þá baráttu sem við, eins og öll önnur vestræn ríki, eigum við að etja, offitu og önnur heilsufarsvandamál tengd henni.

Mér leikur forvitni á að vita hvað þingmaðurinn á nákvæmlega við þegar hann talar fyrir þeirri stefnu Samfylkingarinnar að fella niður öll vörugjöld. Þar er þingmaður væntanlega að tala um, mér þætti gott að fá það skýrt fram, að fella niður vörugjöld af sykri og sætindum. Sú leið sem ríkisstjórnin og ríkisstjórnarflokkarnir hafa ákveðið að fara er millileið við að samþætta þessi sjónarmið, annars vegar um einfalt og gegnsætt skattkerfi en hins vegar að taka til greina lýðheilsusjónarmiðin.

Ég vildi um leið spyrja hann nánar út í tillögu hins hluta kaffibandalagsins svokallaða, þ.e. tillögu þingmanna Vinstri grænna, sem gengur út á að gosið fari í sama vöruflokk og ríkisstjórnin hefur ákveðið að halda eftir. Manni virðist hafa myndast millileið þar sem ríkisstjórnarflokkarnir eru á milli, annars vegar Vinstri grænna og hins vegar þingmanna Samfylkingarinnar.