133. löggjafarþing — 49. fundur,  9. des. 2006.

Þjóðhátíðarsjóður.

356. mál
[17:21]
Hlusta

Frsm. allshn. (Guðjón Ólafur Jónsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar um tillögu til þingsályktunar á þskj. 386 um að leggja niður Þjóðhátíðarsjóð. Í tillögu þessari er kveðið á um starfslok Þjóðhátíðarsjóðs sem stofnaður var í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi árið 1974. Það er sem sagt lagt til að heimilað verði að leggja niður starfsemi sjóðsins frá og með 2011 eins og nánar er gerð grein fyrir á þskj. 386.

Nefndin hefur fjallað um þetta mál og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Ásamt mér standa að nefndaráliti allsherjarnefndar hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson, Björgvin G. Sigurðsson, Birgir Ármannsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson og Þórdís Sigurðardóttir.