vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.
Frú forseti. Ég tek undir með þeim sem ræddu hér áðan um hve óskaplega stór skref ríkisstjórnin hefur stigið í þá átt að lækka skatta á almenning og hvetja atvinnulífið, sem hefur leitt til þess að við búum við há og hækkandi laun sem hvergi annars staðar í heiminum. Ég vona bara að ríkisstjórnin haldi áfram næstu áratugi að lækka skatta og búa atvinnulífinu og almenningi betri kjör.
Ég vil líka nefna það sem felst í þessu frumvarpi sérstaklega og það er einföldunin. Ég held að einföldunin sé meira virði fyrir atvinnulífið en lágir skattar. Því miður gerist það í dag, og ég ætla að nefna það til gamans, að heilmikil þekking fer forgörðum. Það tapast heilmikil þekking í dag, þekking hjá tollheimtumönnum og hjá starfsmönnum fyrirtækja í innflutningi á óskaplega flóknu vörugjaldskerfi, en ég græt þá þekkingu ekki sérstaklega mikið. Þetta fólk getur farið að snúa sér að þjóðfélagslega arðbærum störfum.