vörugjald, virðisaukaskattur og gjald af áfengi og tóbaki.
Virðulegur forseti. Í dag er verið að taka ákvarðanir í skattamálum þar sem tvennt gott er að gerast: Annars vegar er verið að hækka skattleysismörkin og verðtryggja þau eftirleiðis þannig að þau fylgi breytingum sem verða á verðlagi. Hins vegar er verið að lækka matarskattinn og hvort tveggja eru, eins og ég sagði, ágætar breytingar. Hvort tveggja gerist eftir áralanga baráttu aðila vinnumarkaðarins, verkalýðshreyfingarinnar og stjórnarandstöðunnar á þingi fyrir þessum málum, annars vegar fyrir því að skattleysismörkin haldi í við verðbólguna og hins vegar fyrir því að matarskatturinn lækki. Ríkisstjórnin er núna loksins eftir 12 ár að reka af sér slyðruorðið.
Sú ríkisstjórn sem nú situr er einhver mesta hægri stjórn sem setið hefur á Íslandi. Þessi ríkisstjórn er í hópi mestu frjálshyggjuríkisstjórna sem sést hafa á Vesturlöndum og þótt víðar væri leitað á umliðnum árum. Þessi ríkisstjórn hefur létt sköttum af fyrirtækjum, fjárfestum og hátekjufólki en hún hefur hins vegar aukið skattbyrði 9 af hverjum 10 heimila og mest þeirra sem lægstu tekjurnar hafa haft. Þetta eru afrek þessarar ríkisstjórnar. Þetta hefur hún gert m.a. með því að láta skattleysismörk ekki fylgja launaþróuninni fyrr en núna á elleftu stundu fimm mánuðum fyrir kosningar að hún tekur sig saman í andlitinu og grípur til þessara aðgerða. Þessi ríkisstjórn hefur skert skattleysismörkin þannig að ef þau hefðu haldið í við launaþróunina frá því að hún tók við væru þau núna 130 þús. kr. en ekki 91 þús. kr. eins og nú er verið að samþykkja á þinginu. Fimm mánuðum fyrir kosningar eftir 12 ára setu ákveður þessi ríkisstjórn, mesta hægri stjórn sem hér hefur setið, frjálshyggjustjórn sem er í hópi þeirra skæðustu sem setið hafa á Vesturlöndum, að taka sig saman í andlitinu og breyta sér eftir að stjórnarandstaðan, verkalýðshreyfingin, öryrkjar og aldraðir hafa barist fyrir þessu árum saman.