framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 15. janúar 2007 kl. 13.30.
Gjört á Bessastöðum, 10. janúar 2007.
Ólafur Ragnar Grímsson.
____________
Geir H. Haarde.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Fundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum svo og starfsmönnum þingsins óska ég gleðilegs árs, þakka hið liðna, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljósi þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.