Ríkisútvarpið ohf.
Frú forseti. Ég get svo sem skilið það að hæstv. forseti sé í erfiðri stöðu þegar hingað koma þingmenn eins og hv. þm. Össur Skarphéðinsson (ÖS: Ekki …) og fara að ræða um efnisatriði málsins og málsmeðferð í nefndinni. Spjótin beinast öll að þeim sem hér stendur. Einhvern veginn verð ég nú að verja mig. Það hyggst ég gera. (Gripið fram í: Af hverju viltu þá ekki ræða …?) Það hyggst ég gera.
Ég benti hv. þingmanni, sem baðar hér út öngunum alveg trítilóður, á það að ég á síðari ræðu mína eftir. Það skyldi þó ekki vera að ég mundi fara yfir þessi mál úr því að eftir því var sérstaklega óskað af hálfu hv. þingmanns. Ég bendi honum hins vegar á (Gripið fram í.) að mjög hefur verið fjallað um þessi atriði sem hann telur óljós. Við fjölluðum um meginreglur Evrópuréttarins og evrópsks samkeppnisréttar um ríkisstyrkjareglurnar. Hverjir gerðu það? Ólafur E. Friðriksson gerði það. Fulltrúar úr menntamálaráðuneytinu gerðu það líka. (Gripið fram í.) Við reyndum að kalla eftir fleiri sérfræðingum til að fjalla um þau mál.
Niðurstaðan er sú að af hálfu meiri hlutans er enginn ágreiningur um það að þetta frumvarp haldi vatni og vel það gagnvart Evrópuréttinum. Yfir það fór Ólafur E. Friðriksson svo að dæmi sé tekið. Ég veit að hv. þm. Mörður Árnason getur vitnað um það að Ólafur E. Friðriksson taldi að þetta frumvarp stæðist samkeppnisreglur Evrópusambandsins og vísaði sérstaklega til þess að þjónustusamningurinn væri forsenda þess að frumvarpið stæðist ríkisstyrkjaregluna.
Þetta var allt saman rétt og ég ætla ekki að gera ágreining við sérfróðan mann um niðurstöður hans sem miklar rannsóknir liggja að baki. Svona er þetta og þrátt fyrir að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sakni þess að ég fjalli um einhver sérstök efnisatriði málsins í ræðu minni bendi ég honum á að hann ákveður ekki hvað ég segi hér í mínum ræðum, frú forseti. Ég sem mínar ræður sjálfur og þær verða ekki ritskoðaðar af hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni þrátt fyrir að hann sé fyrsti þingmaður þess kjördæmis sem ég kem úr.
Hv. þm. Ögmundur Jónasson velti fyrir sér hvort ég hefði verið tilbúinn og treyst mér til að samþykkja frumvarpið út úr nefndinni án þess að þessi gögn lægju fyrir. Eftir að hafa lesið þessi gögn og kynnt mér þau get ég svarað að það hefði ég gert enda leiddi framlagning þessara gagna ekki til neinna breytinga af hálfu meiri hlutans á frumvarpinu. (Forseti hringir.) (Gripið fram í: Það segir svo í svarinu frá 9. janúar.)