Ríkisútvarpið ohf.
Virðulegi forseti. Það var ánægjulegt að fá svör þó að þau hafi að vísu ekki verið mjög skýr. Áðan hét það að við ættum að halda áfram um sinn en nú heitir það að ekki eigi að ræna hv. þingmenn nætursvefni nema að litlu leyti. Einhverjir þingmenn eiga t.d. að mæta á nefndarfund klukkan hálfníu í fyrramálið, samgöngunefnd fundar t.d. þá. Það vill svo til að ég á að mæta á þann fund. Ég er aðeins að velta því fyrir mér hversu lengi umræðurnar haldi áfram inn í nóttina. Það væri auðvitað þægilegt að geta farið að halla sér, a.m.k. að halda heim á leið þó svo að maður nái ekki átta tíma nætursvefni og kannski ekki sjö, en það væri gott að ná sex og hálfum t.d. Sennilega verður maður að vera viðbúinn því að hæstv. forseti taki tillit til þess að það liggur ekki lífið við, held ég. Það er ekki verið að klára þetta mál í kvöld eða nótt, eða hvað?
Þess vegna óska ég eindregið eftir því í fyllstu auðmýkt, virðulegi forseti, að fljótlega verði gert hlé á þessari mikilvægu og miklu umræðu til að starfsfriður geti haldist í þinginu. Ég held að það sé afar mikilvægt upp á framhald þingstarfanna, framhald þessa máls og annarra miklu mikilvægari mála, ef til vill, sem ég hygg að ríkisstjórnin hafi áhuga á að koma fram með. Það var reyndar farið vel yfir það í upphafi þingfundar í dag að fyrir þinginu liggja mörg mikilvæg mál og við eigum ekki að ýta þeim of langt á undan okkur. Þess vegna vona ég að við þurfum ekki að standa hér og sitja í alla nótt, virðulegi forseti.