133. löggjafarþing — 52. fundur,  16. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[15:21]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þm. Hlyni Hallssyni fyrir það að tilkynna hvenær hann yrði búinn með ræðu sína þannig að ég geti þátt í málefnalegri umræðu við hann. Það er mjög virðingarvert. Hann talaði mikið en mér fannst ekki koma neitt voðalega mikið út úr því, því miður. Enda átti ég kannski ekki von á því að það væri neitt sérstaklega nýtt í þessari miklu maraþonumræðu um RÚV. En hann sagði rétt áðan að ég vilji að þetta „óþolandi Ríkisútvarp“ verði selt. Ég tel ekki að Ríkisútvarpið sé óþolandi. Ég tel að Ríkisútvarpið sé virkilega góð stofnun með hæfu og góðu starfsfólki sem örugglega blómstrar þegar verður búið að breyta því í ohf. Það verður mikið kraftaverk þegar verður búið að breyta þessu. Það verður allt önnur staða.

Varðandi það sem hv. þingmaður sagði um ESA og samkeppnina þá get ég ekki séð annað en að samkeppnisforskotið minnki því að nú stendur allur ríkissjóður á bak við samkeppnisrekstur RÚV. Hver einasta króna í samkeppnisrekstri RÚV bæði á auglýsingamarkaði og eins í dægurmálaútvarpi, sem varla er almannaútvarp, eins og Rás 2, er með ríkisábyrgð. En eftir að búið er að breyta því í hlutafélag þá er a.m.k. bara hlutafé sem stendur á bak við það og fjárveitingar á hverju ári. Kvöð ESA minnkar því en það getur vel verið að ESA neyði menn til að selja þennan samkeppnisrekstur.

En ég ætlaði að tala um Flugstoðir ohf. Þar sem hv. þingmaður er annaðhvort vinstri eða grænn nema hvort tveggja sé þá geri ég ráð fyrir að hann sé vinstri og það vildi svo til að allir starfsmenn Flugstoða samþykktu breytingu nema flugumferðarstjórar og þeir eru með 740 þús. kr. að meðaltali í laun. Ekki lágtekjufólk. Ég skil ekki umhyggju hv. vinstri þingmannsins fyrir hátekjufólki sem hefur eyðilagt svonefndan Gini-stuðul.