varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf um forföll þingmanns frá 2. þm. Suðurk., Drífu Hjartardóttur, dagsett 16. janúar sl., sem hljóðar svo:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis, að óska þess að 2. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. 1. varaþingmaður flokksins, Böðvar Jónsson, er forfallaður að þessu sinni.“
Forseta hefur borist bréf, dagsett 15. janúar, frá 1. varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þar sem hann tilkynnir forföll vegna starfsanna á öðrum vettvangi.
Kjörbréf Helgu Þorbergsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Helga Þorbergsdóttir, 2. þm. Suðurk., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]