beiðni um utandagskrárumræðu o.fl.
Herra forseti. Það er ekkert skrýtið að mönnum hlaupi kapp í kinn í umræðum af þessu tagi og ég vil byrja á því, af því að ég ber mikla virðingu fyrir forsetanum, að biðja hann afsökunar á því að hafa í kappi mínu áðan farið yfir þau tímamörk sem leyfileg eru. Hins vegar vil ég líka tjá hæstv. forseta þá skoðun mína að hann eigi nú kannski ekki að grípa til þess tónfræðilega ofbeldis sem hann gerði áðan, sem gerir það að verkum að ég hef tímabundið tapað heyrn á öðru eyra.
Ég vil hins vegar þrátt fyrir alla mína virðingu fyrir fundarstjórn þess hæstv. forseta sem nú situr í stóli draga mjög í efa að hann leggi réttan skilning í lögin. Hæstv. forseti sagði áðan að það væri í valdi forseta að ákveða hvort þingmenn fengju að ræða hér brýn mál utan dagskrár. Ég leyfi mér, herra forseti, að draga í efa að þetta sé réttur skilningur. Í 50. gr. laga um þingsköp Alþingis kemur það alveg skýrt fram í 1. málsgrein að þingmaður geti í allt að hálftíma fengið umræðu um mál utan dagskrár svo fremi að hann óski eftir því tveimur tímum áður en fundur hefst. Það eru engin undanbrögð frá því.
Nú veit ég ekki hvaða skyn forsetadæmið hefur á tíma og rúmi en það eru tveir sólarhringar frá því að beðið var um utandagskrárumræðuna um Byrgið. Það er mál sem öll þjóðin hefur fylgst með, það er mál sem varðar Alþingi sérstaklega, herra forseti, vegna þess að þar hefur hver ráðherrann á fætur öðrum skotið sér undan ábyrgð. Er það þá bara þannig að hið háa Alþingi á að sitja undir því að það sé verið að sóa milljónatugum án nokkurs eftirlits og ráðherrarnir koma, sem við höfum kosið til þess að fara með það vald sem þeir hafa í höndum sínum, og segja: Það ber enginn ábyrgð á því? Er þá ekki, herra forseti, fullkomlega eðlilegt að þingmenn vilji notfæra sér rétt sinn til að krefja þá sagna um stöðu og þróun málsins til þess að grafast fyrir um hvar rætur þessarar ábyrgðar liggja? Eða er það virkilega svo að hæstv. forseti telji að það sé í lagi að það liggi fyrir samkvæmt áliti Ríkisendurskoðunar að það hafi verið misfarið með tugi milljóna og enginn beri ábyrgð á því? Mér finnst það nú heldur umhendis. (Gripið fram í.) Nú talar sá og galar, haninn framan úr salnum, sem er búinn að liggja í flóttanum síðustu daga og hefur ekki þorað að láta sjá sig og væntanlega sjáum við undir iljar hans á eftir þegar við förum að ræða um Ríkisútvarpið.
Herra forseti. Ég kem upp til að mótmæla túlkun forseta á þessu og ítreka að það er ekki hægt að fara svona undan í flæmingi með umræðuna um málefni Byrgisins. Krafan liggur fyrir en hæstv. forseti sagði rétt áðan að í dag hygðist forseti taka ákvörðun um hvenær. Það er ekki nóg fyrir okkur og ekki fyrir lögin.