133. löggjafarþing — 54. fundur,  18. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[13:50]
Hlusta

Kolbrún Halldórsdóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það liggur ljóst fyrir að þegar kjarasamningum sleppir eftir tvö ár að þá verði samningsformi breytt þannig — og þetta hef ég eftir útvarpsstjóra sjálfum — að við taka nýir samningar, svokallaðir frjálsir samningar. Við frjálsu samningana sem gerðir eru við einstaklingana þá gerist tvennt sem við vitum af reynslu, í fyrsta lagi það að að öllum líkindum breikkar bilið á milli launa karla og kvenna. Ég spyr hæstv. menntamálaráðherra. Er hún sátt við það? Sömuleiðis segir útvarpsstjóri að við þetta geti starfsmenn selt kauphækkanir gegn réttindum. Hvað þýðir það? Er hæstv. menntamálaráðherra sátt við það? Áttar hún sig ekki á eðli opinbers réttar og á hvern hátt hann er öðruvísi en einkaréttur?

Þessi stofnun, Ríkisútvarpið, á það skilið af okkur hér á löggjafarsamkundunni að við stöndum saman um breytingar sem á því þarf að gera. Við í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði höfum lagt fram frumvarp um það á hvern hátt við viljum breyta Ríkisútvarpinu og gera það skilvirkara að ýmsu leyti (Forseti hringir.) en hæstv. menntamálaráðherra skellir við skollaeyrum og neitar að (Forseti hringir.) ræða við okkur.