133. löggjafarþing — 54. fundur,  18. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[22:42]
Hlusta

Forseti (Jón Kristjánsson):

Í ljós hefur komið að þingmenn vilja ræða þetta mál ítarlega við 3. umr. og við forsetar þingsins höfum viljað gefa svigrúm til þess. En tíminn er takmarkaður. Ég get ekki sagt annað en að við höldum áfram fram eftir í kvöld og reikna með að við höldum áfram fundinum enn um sinn, að minnsta kosti til klukkan tólf, og jafnvel lengur ef þurfa þykir.