málefni Byrgisins.
Virðulegi forseti. Það mál sem við höfum óskað eftir að taka á dagskrá hefur á sér margar hliðar, bæði fjárhagslegar og faglegar. Ég vil taka það fram í upphafi að ég tel afar mikilvægt að þetta félagslega úrræði sé til staðar, að hægt sé að vista heimilislausa og þá sem minna mega sín í samfélaginu og koma þeim til aðstoðar í vandamálum sínum. Þessi umræða má ekki gera lítið úr því mikilvæga hlutverki að slík úrræði séu til staðar.
Félagsmálanefnd og fjárlaganefnd hafa nú í tvo morgna farið yfir þetta mál og reynt að kynna sér það í þaula enda er málið grafalvarlegt. Umfjöllun nefndanna er ekki lokið. Þrátt fyrir það tel ég mikilvægt að hægt sé að koma að hér í umræðunni fyrirspurnum til hæstv. ráðherra um þetta tiltekna mál. Kjarninn í því sem ég vil ræða eru árin 2003–2007. Þetta eru fjögur ár eða þar um bil þar sem rúmlega 200 millj. kr. hafa runnið úr ríkissjóði til Byrgisins, þ.e. með kaupum á fasteign og framlögum til verkefnisins.
Á árinu 2003 samþykkti ríkisstjórnin skilyrta fjárveitingu til þessa verkefnis og þar var gerð skýlaus krafa um ákveðin skilyrði til þess að þessir fjármunir rynnu úr ríkissjóði. Í framhaldi af því var gengist í að útbúa yfirlýsingu þar sem taka átti fram hvernig að fjárveitingunum skyldi staðið. Ég held að það sé mikilvægt í þessari umræðu að fara aðeins yfir þessi skilyrði til þess að upplýsa um hvað þetta mál snýst. Í yfirlýsingu ráðuneytisins og Byrgisins, sem reyndar var aldrei undirrituð af Byrginu vegna deilna um fjölda vistmanna þar sem ráðuneytið gerði kröfu um að þeir yrðu 55 en á árunum 2003–2007 náðu þeir aldrei nokkurn tíma þeirri tölu, voru skilyrði fyrir þessum útgreiðslum að ársreikningar lægju fyrir og að Byrgið hefði komið málum sínum í skil. Enn fremur að ríkisendurskoðandi hefði yfirumsjón með þessu verkefni, en í umfjöllun nefndarinnar hefur komið fram að ríkisendurskoðandi vissi aldrei um tilvist þessarar yfirlýsingar og þar af leiðandi átti hann þess ekki kost að vita að það væri hlutverk hans að fylgja eftir framkvæmd þessa þjónustusamnings. Í skilyrðunum var enn fremur tekið fram að ef rekstraraðili, þ.e. Byrgið, uppfyllti ekki þessar kröfur og fleiri til mætti stöðva greiðslur án þess að viðkomandi ætti nokkurn rétt á hendur ríkissjóði.
Þetta eru þau atriði sem skipta máli í þessari umræðu, því að þrátt fyrir að þessi skilyrði hafi legið fyrir, þrátt fyrir að þetta hafi verið forsendur fyrir útgreiðslu runnu úr ríkissjóði í þetta verkefni á þessum árum á þriðja hundrað milljónir króna. Á þriðja hundrað milljónir runnu úr ríkissjóði til þessa verkefnis á þessum árum án þess að þessi skilyrði væru uppfyllt.
Það er hlutverk félagsmálaráðherra að sjá um þessar greiðslur og hafa eftirlit með þeim. Við höfum fjallað talsvert um það í þessari umræðu hvar ábyrgðin kunni að liggja, þar hefur hver bent á annan og helst enginn viljað taka á sig nokkra ábyrgð ef formaður fjárlaganefndar er undanskilinn.
Það sem er kannski kjarninn í þessu máli og kom fram á fundi í morgun og einnig í gær er að talað er um að geysilegur pólitískur þrýstingur hafi búið að baki því að þessar greiðslur runnu úr ríkissjóði og ég spyr hæstv. (Forseti hringir.) ráðherra: Hvaðan kom þessi pólitíski þrýstingur þrátt fyrir að þessi skilyrði væru ekki uppfyllt?