Ríkisútvarpið ohf.
Herra forseti. Ég fagna því að hv. þingmaður hafi fengið rúman tíma til að fara yfir málið. Hann ræðir hér um sölumenn RÚV. Ég tel að stjórnarandstaðan hafi verið með hæstu raddirnar um sölumennsku RÚV, ekki síst hv. þm. Einar Már Sigurðarson sem talaði (Gripið fram í.) mikið um sölumenn RÚV hér í gær. (Gripið fram í.) Ég held að það sé nefnilega málið að þeir sem tala mest hér af hálfu stjórnarandstöðunnar séu að tala RÚV út af borðinu.
Ég sagði það alveg klárt og skýrt í minni ræðu hér áðan að við þyrftum að láta tímann leiða í ljós hvert RÚV mundi stefna inn í framtíðina og að það kynni að verða fyrir því meiri hluti síðar meir á Alþingi að skynsamlegt væri að breyta rekstrarforminu enn. Mér finnst bara ekkert óeðlilegt að við horfum þannig til þess. Í dag er ekki meiri hluti innan stjórnarflokkanna fyrir því að selja RÚV og þess vegna er það sagt sérstaklega í 1. gr. frumvarpsins að ekki skuli selja RÚV. (Gripið fram í.)
Næsta atriði sem hv. þingmaður kom að er í sambandi við breytingu á frumvarpinu. Ég sagði og staðfesti það hér aftur að hvaða lög sem við samþykkjum hér á þinginu þá eigum við auðvitað að taka þau upp ef það koma þær aðstæður sem eru ófyrirséðar þegar viðkomandi lagasetning á sér stað. Ég nefndi sérstaklega raforkulögin. Þau hafa nokkrum sinnum verið tekin upp og ég held að við séum bara menn að meiri að lagfæra þá hnökra sem kunna að koma upp í lagasetningu, sem koma upp vegna ófyrirséðra þátta sem gerast þegar stofnunin fer að vinna.