133. löggjafarþing — 55. fundur,  19. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[12:22]
Hlusta

Kjartan Ólafsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður talar um að bæta stöðu Ríkisútvarpsins og það er það einmitt sem við ætlum að gera. Það er okkar sameiginlega verkefni. Við gerum það m.a. með því að samþykkja frumvarpið og 1. gr. þess, að gera Ríkisútvarpið að ohf. og gera það þannig að stjórnunarstrúktúrinn verði straumlínulagaðri og það verði auðveldari og skynsamlegri rekstur á stofnuninni sem þá verður ohf. Við náum því.

Það hefur komið fram hjá Ríkisendurskoðun sem hefur undirbúið stofnfjársamning hlutafélagsins að þetta sé mjög rekstrarhæft félag. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af fjárhagnum miðað við þá tekjustofna sem hér eru ætlaðir til Ríkisútvarpsins.

Við skulum standa að því sameiginlega, hv. þingmaður, að hafa Ríkisútvarpið öflugt áfram. (Forseti hringir.) Ég held að það sé ekki tímabært að svara þeirri spurningu og menn eru ekkert að leita (Forseti hringir.) eftir tilboðum í RÚV.