dómstólar og meðferð einkamála.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessar umræður og þau sjónarmið sem fram hafa komið og eru gagnleg vegna framvindu málsins í þinginu. Ég ætla ekki að tjá mig frekar um aðstoðarmenn dómara, ég tel að með breytingunum sé verið að skapa þeim starfsskilyrði til þess að taka þær ákvarðanir sem um er að ræða samkvæmt lögum. Eins og menn muna sem þekkja til mála var talið að réttarstaða og réttaröryggi aðstoðarmanna dómara væri ekki nægilega tryggt. Þess vegna var breytingin gerð, að breyta þeim í fulltrúa án þess að þeir hefðu jafnmikið vald til að taka af skarið um mál eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. En um leið og sagt er að þeir fái þetta vald er líka verið að tryggja starfsöryggi þeirra þannig að það er komið til móts við það sjónarmið.
Varðandi birtingu dóma Hæstaréttar eða úrskurða er þetta breyting á greininni að því leyti að það var í frumvarpinu, eins og það var flutt í fyrra, ákvæði um að menn ættu að fresta um einn sólarhring að birta á netinu dóma Hæstaréttar, það er fallið frá því. Það sætti töluverðri gagnrýni í umsögnum sem bárust til allsherjarnefndar og það er fallið frá því. Hv. þingmaður spyr: Ef þetta ákvæði — sem ég hef ekki grandskoðað — ef það er heimild í lögum til þess að fresta birtingu af hverju er þá verið að taka af skarið með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu? Ég tel að í tilvikum eins og þessum eigi löggjafinn að segja álit sitt og taka af skarið með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu þannig að menn þurfi ekki að vera að deila um þetta fyrir dómstólum, að miklu skýrari og skarpari leikreglur eigi að gilda fyrir dómstólunum. Það er nóg um deilt þar þó að menn séu ekki að deila um hvort birta eigi gögn deginum fyrr eða síðar. Ég tel að það sé hlutverk löggjafans að taka af skarið í slíkum málum og þess vegna er þetta lagt til þannig að þetta sé hreint og klárt af hálfu löggjafans. Ef löggjafinn vill ekki taka af skarið um slík atriði þá er það sjónarmið sem hér hefur komið fram, en ég tel að löggjafinn eigi að taka af skarið þegar þannig liggur í málum og verið sé að gera það hér á skýran og skilmerkilegan hátt og það muni einfalda störf dómara og draga úr ágreiningi fyrir dómstólum um mál sem löggjafinn getur vel ákveðið, eins og hér er lagt til.
Þetta með myndatökurnar og heimildir til þess þá hefur, eins og fram kom í máli hv. þm. Ágústs Ólafs Ágústssonar, dómstjóri heimildir. En það kemur líka fram í greinargerð um 7. gr. að bæði í Danmörku og Noregi gilda ákvæði í lögum sem eru svipuð þeim og við erum að setja. Þjóðum hefur ekki almennt orðið skotaskuld úr því að búa þannig um hnútana að dómstólar og almenningur og allir séu vel upplýstir um störf dómstólanna þótt það sé ekki verið að kíkja með myndavélum í dómsali þegar hurðir eru opnaðar og annað slíkt. Það setur tvímælalaust sérstakan svip á réttarhöld og skapar óþarfa spennu í dómshúsinu þegar menn eiga að einbeita sér að því að gæta hagsmuna sinna að þeir þurfi ekki einnig að vera að gæta hagsmuna sinna gagnvart því ef hurð er opnuð hvort verið sé að reyna að smella af þeim myndum eða ekki eða verið sé að tefja fyrir þeim við komu. Í þeirri stöðu sem menn eru þegar þeir ganga í dómshúsið eiga þeir ekki að þurfa að glíma við þennan vanda líka. Ég tel að það sé líka hlutverk löggjafans að taka af skarið um þetta og setja almennar leikreglur í þjóðfélaginu sem eru skýrar og afdráttarlausar.
Það er skiljanlegt að blaðamenn sem hafa gaman af því að taka myndir í gegnum opnar dyr séu á móti þessu en ég held að við þingmenn eigum ekki að líta til þess, við eigum að líta til þeirrar reglu sem þarf að vera í dómshúsum og þeirrar virðingar sem menn eiga að sýna þegar þeir eru staddir á þeim stað og þau mál sem liggja þar fyrir og eru þar til meðferðar. Oftast er fyrirgangurinn mestur í kringum sakborninga eða lögmenn í hinum alvarlegustu málum, menn að ryðjast um með tæki og tól eins og dómshúsið sé einhver salur fyrir menn sem eru að fara á kvikmyndasýningar í Cannes eða einhverja slíka staði. Vill hv. þingmaður að dómshúsið líti þannig út? Það vill það enginn. Allar þjóðir hafa gert ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að slíkur gauragangur sé í húsum og það er meira að segja bannað í kvikmyndahúsum á kvikmyndahátíðum að ljósmyndarar æði inn um alla ganga og upp um veggi þegar fólk er þar. Hið sama á að vera í dómshúsum og ekki að láta undan því þótt menn hafi gaman af því að geta tekið myndir í gegnum einhver hurðarop.
Varðandi millidómstigið þá er það svo að dómstólaráð varpaði þeirri hugmynd fram á aðalfundi Dómarafélags Íslands sem haldinn var í nóvember sl. Í byrjun nóvember á síðasta ári flutti ég ræðu um þetta mál. Þar sagði ég að um leið og menn ræddu um millidómstóla ættu þeir að ræða það sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. um hlutverk sérdómstóla og hvort það hefði verið skynsamlegt skref sem stigið var með setningu dómstólalaganna á sínum tíma að afnema sérdómstólana alveg. Ég hef ekki lagt til að stofnaður verði stjórnsýsludómstóll en ég hef varpað þeirri hugmynd fram hvort við eigum ekki að ræða hvort það sé rétt að málum staðið að útiloka alveg sérdómstóla hvort sem það er um ungmenni eða einhverja aðra sérgreinda málaflokka að ræða, t.d. í fíkniefnamálum eða slíkum málum þar sem sérþekkingar er krafist. Við sjáum það líka í stórum viðskiptamálum sem hér koma fyrir. Það er spurning hvort ekki þurfi að þjálfa dómara til sérþekkingar í slíkum málum þannig að réttaröryggið aukist. Ég tek því undir með hv. þingmanni að þetta beri að íhuga þegar við ræðum þessi mál.