133. löggjafarþing — 57. fundur,  22. jan. 2007.

dómstólar og meðferð einkamála.

496. mál
[15:52]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður veit og þingheimi er kunnugt þá hefur verið í smíðum frumvarp til laga um breytingar á lögum um meðferð opinberra mála og það hefur verið kynnt frumvarp til laga um meðferð sakamála. Í þeim lagabálki er á þessu tekið og þar mun koma fram afstaða mín í málinu þegar ég fæ tækifæri til þess að leggja það mál fram a.m.k. til kynningar á þinginu áður en því lýkur í vor. Ég ætla að bíða með yfirlýsingar um þetta efni þar til ég legg það frumvarp fram, tekin er afstaða til þess í því en ekki í því dómstólafrumvarpi sem við ræðum núna.