133. löggjafarþing — 57. fundur,  22. jan. 2007.

íslenskur ríkisborgararéttur.

464. mál
[16:14]
Hlusta

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Ég ætla aðeins að ræða einn þátt þessa máls og treysti því að allsherjarnefnd taki málið allt fyrir og veiti því vandaða athygli og meðferð. Sá þáttur sem ég ætla að ræða hér lauslega er c-liður 5. gr., um það að ríkisborgurum sé skylt að hafa lokið íslenskunámi.

Ég vil segja það almennt um þessa kröfu að það er rétt sem hér stendur í athugasemdum og dómsmálaráðherra flutti áðan, kunnátta í tungumálinu er mikilvægasti lykillinn að íslensku samfélagi og mikilvægasta tækið sem gestir og nýliðar í því samfélagi hafa til að aðlagast því.

Hins vegar verð ég að segja að þegar íslenskum stjórnvöldum dettur í hug, og okkur Íslendingum, að gera þetta að skilyrði af okkar hálfu verðum við að gjöra svo vel og gera rækilega grein fyrir því gagnvart okkur sjálfum, gagnvart þeim sem sækja um þennan ríkisborgararétt og gagnvart erlendu fólki, hver réttur umsækjendanna er. Hvað er það sem við gerum til þess að reiða fram þau tæki og tól, kennara og aðstöðu sem gera fólki kleift að sækja þetta nám, afla sér þeirrar kunnáttu sem hér á að krefjast? Ég verð að segja að staðan núna er þannig að í raun og veru er út í hött að krefjast þess af fólki sem hér sækir um ríkisborgararétt að það uppfylli þessi skilyrði.

Íslenskukennsla er hér svo dapurleg að við höfum engan veginn við þeirri eftirspurn sem fyrir hendi er, hvað þá hinni leyndu eftirspurn fólks sem gæti hugsað sér að læra íslensku ef það fengi til þess tækifæri.

Rétt er að muna að ekki er einungis um það að ræða að margir þeir sem hér sækja um ríkisborgararétt eða gætu hugsað sér að sækja um ríkisborgararétt eru lítt menntaðir. Rétt er að muna að þeir hafa yfirleitt hendurnar fullar af vinnu sem þeir þurfa að sinna, oft láglaunavinnu. Rétt er líka að muna að mjög margir þeirra sem hugsa sér að sækja um ríkisborgararétt eru hér annaðhvort í félagslegu tómarúmi eða þá með tengingu við sína eigin landsmenn eða hópa hér í landinu sem samanstanda af innflytjendum eða útlendingum og eiga þess vegna óhægt um vik að þjálfa sig í þessu nýja tungumáli.

Þegar minnst er í greinargerðinni á hina nýlegu ákvörðun, með leyfi forseta, um að „stórbæta framboð á íslenskunámi fyrir útlendinga“ og sú ákvörðun í raun talin forsenda þess að unnt sé að leggja þetta til eru ansi stór orð notuð um þær 100 millj. kr., sem fagnað var á sínum tíma — ég tek undir þann fögnuð — sem menntamálaráðherra færði hér fram í umboði ríkisstjórnarinnar sem viðbragð við ákveðinni umræðu í samfélaginu, viðbragð við því að stjórnmálaflokkur hóf mikla umræðu um það að við værum komin í vanda með innflytjendamál okkar.

100 millj. krónurnar eru fram hjá fjárlögum og ekki í hinu venjulega fjárlagaferli. Það er verið að auglýsa núna eftir styrkumsóknum um þessar 100 millj. og ég hef ekki tekið eftir að þeirri auglýsingu fylgi í raun og veru nein stefnumótun af hálfu menntamálaráðuneytisins eða ríkisstjórnarinnar um það hvað á að gera við þessar 100 millj. kr.

Ég hef aðeins skoðað íslenskukennslu hér á landi. Þrátt fyrir feikileg afrek einstaklinga og skólastofnana, verkalýðshreyfingarinnar og sveitarfélaga, er ástandið dapurlegt í þeim efnum. Það má nefna t.d. og kannski til grundvallar í því máli að framboð okkar á námsgögnum og það framboð sem við höfum af reynslu og þekkingu fyrir kennara í íslensku sem öðru tungumáli er af ákaflega skornum skammti og það er út af fyrir sig engum að kenna því að þessi þörf kemur upp mjög hratt og við höfum ekki þessa áratuga og alda reynslu ýmissa annarra þjóða, grannþjóða okkar, við að kenna tungumál okkar sem annað tungumál. Við erum að vísu ákaflega þjálfuð í að kenna það sem móðurtungu og höfum gert allt frá því að Ingólfur setti börn sín á kné sér eða Hallveigu en við höfum ákaflega litla æfingu í hinu og skortir þar mjög öll gögn. Fjárveitingar til þeirra mála hafa verið fátæklegar þótt menn í t.d. Kennaraháskólanum kvarti sérstaklega undan því að hafa ekki fengið tækifæri til að koma þessu námi upp.

Ég tel það bara ekki sannfærandi, forseti, að byggja þessa tillögu um skyldunám umsækjenda og ríkisborgararétt á því að hér sé búið að taka ákvörðun um að stórbæta framboð á íslenskunámi fyrir útlendinga.

Ég verð líka að segja að ég vara mjög við því að samþykkt sé það lagaákvæði sem hér um ræðir þar sem ráðherra einum er falið, án nokkurrar leiðbeiningar, hvorki í lögunum né í athugasemdunum, að setja allt það regluverk sem hér þarf til þar sem m.a. er um að ræða þær kröfur sem gerðar eru til þessa náms.

Og ég spyr hæstv. dómsmálaráðherra: Hugsar hann sér að þetta séu sömu kröfur fyrir alla? Hugsar hann sér að þessar kröfur séu mismunandi? Hugsar hann sér að farið sé t.d. — sem nefndin virðist ekki hafa komið auga á, eða menn í dómsmálaráðuneytinu — eftir því flokkunarkerfi sem til er um tungumálakunnáttu í Evrópusambandinu þar sem skipt er eftir ákveðnum reglum í A-, B- og C-stig? Það er ekkert um það hér. Það er eins og þeir sem gengu frá frumvarpinu hafi lítið vitað um tungumálanám og kröfur sem þar eru gerðar og þá flokkun sem þar fer fram. Það er engan veginn fjallað um þetta.

Það er ekki talað um það í þessum kafla að það kunni að vera mismunandi hvaða kröfur er hægt að gera til fólks eftir því frá hvaða málsvæði það kemur. Menn vita að kannski eru Þjóðverjar þeir sem best gætu lært þessa tungu miðað við þýsku málfræðina. Menn vita að Norðurlandamenn eiga tiltölulega auðvelt með það. Menn vita að Slövum er það skárra en rómönsku þjóðunum. Menn vita að Víetnömum, Tælendingum, Kínverjum og öðrum þeim sem þær tungur tala, sem eru tónkvæðar tungur þar sem ekki er mikill munur á hinum hefðbundnu orðflokkum, nafnorði, sögn, lýsingarorði, forsetningu — miklu minni og með allt öðrum … (ÖS: Veit dómsmálaráðherra þetta?) Ég geri nú ekki kröfu til þess að dómsmálaráðherra viti þetta (Dómsmrh.: Það er gott að fá kennslustund.) en ég geri þær kröfur að menn geri sér grein fyrir því að það er ákaflega ólíkt að setja hér í gang menntaðan Þjóðverja til að læra íslensku eða mann sem kannski rétt kann að lesa víetnömsku. Það getur munað því að Þjóðverjinn sé kannski hálft eða eitt ár að ná góðri kunnáttu í íslensku en það taki Víetnamann 10–15 ár.

Það má líka spyrja um undanþágurnar sem á að gefa. Hverjar eru forsendur þeirra? Eigum við að samþykkja hér lög þar sem ráðherrann ræður undanþágunum? Á ekki að búa til reglurnar um undanþágurnar? Hverjir eru það sem fá þessar undanþágur?

Maður getur ímyndað sér það en ég les ekki úr frumvarpinu hvernig það er. Maður getur ímyndað sér að þar skipti aldur máli, að þar skipti máli bæði hár aldur — fólk sem hér sest að og er ósanngjarnt að láta læra íslensku vegna þess að námsnæmi fólks hnignar nokkuð með aldri — en það má líka ímynda sér að ungur aldur geti verið undantekning frá þessu vegna þess að það nám komi af sjálfu sér í íslensku samfélagi.

Það má ímynda sér að undanþágurnar taki til fólks í neyð. Hér var minnst á flóttamenn í ræðu hv. þm. Guðrúnar Ögmundsdóttur og ég tek að sjálfsögðu undir áhyggjur hennar að öllu leyti. Það er t.d. spurning sem hæstv. dómsmálaráðherra er rétt að svara: Eiga þessar undanþágur að gilda um frægt fólk? Eiga þær að gilda um Ashkenazy og Fischer? Og hvernig á þá að skilgreina frægð slíks fólks? Þessar undanþágur eru ekki nefndar hér og án þess að nokkur grein sé gerð fyrir þeim er ómögulegt að hleypa þessu ákvæði með þessum hætti í gegn.

Það er mitt ráð að við byrjum á því að byggja upp íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Þegar það er komið í þokkalegt lag skulum við íhuga hvort eigi að gera íslenskukunnáttuna að skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar.

Ég verð að segja almennt, um leið og ég tek undir þetta, um kunnáttu í tungumálinu sem lykil að samfélaginu að við eigum bæði sjálf að líta á það sem lykil og aðgöngumiða og við eigum að gera vinum okkar sem hingað koma, umsækjendum um ríkisborgararétt, innflytjendum sem hér setjast að og taka þátt í samfélaginu þótt þeir hafi ekki aflað sér ríkisborgararéttar og vinnugestum okkar ýmsum, kleift að kynnast íslensku. Við eigum að veita þeim íslenskukunnáttu sem þennan aðgöngumiða, lykil, en við eigum ekki, ekki gagnvart þeim og ekki gagnvart okkur, að gera íslenskuna og íslenskukunnáttuna að þvingun eða helsi.

Þannig búum við, bæði með sjálfum okkur og meðal þeirra sem kynnu að sækja um ríkisborgararétt af því þeir vilja búa hér með okkur eða vinna fyrir okkur og með okkur um hríð, til múr sem við megum alls ekki við að reisa í kringum íslenska tungu á þessum hnattvæðingartímum.

Ég hef miklar efasemdir, eins og menn heyra sem á mig hlýða, um að íslenskukunnáttan verði þvingun. Ég hef enn þá meiri efasemdir um að gera það án þess að undantekningar séu ræddar og skýrðar. Ég er á móti því að þetta sé gert án þess að íslenskt samfélag standi við sinn hluta af því samkomulagi sem ég tel að ríkisborgararéttur sé í eðli sínu milli ríkisborgaranna sem fyrir eru og þeirra sem um sækja.

Ég segi við þingheim og hæstv. dómsmálaráðherra að það er langt frá því að við höfum staðið við þá skyldu okkar að bjóða útlendingum, umsækjendum um ríkisborgararétt, vinnugestum og öðrum vinum okkar það tækifæri til íslenskunáms sem okkur ber.