íslenskur ríkisborgararéttur.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt. Það er ekki að ófyrirsynju að það mál kallar á ákveðna umræðu og jafnvel umræðu sem varðar grundvallaratriði í stefnu stjórnvalda gagnvart innflytjendum á Íslandi og fólki af erlendu bergi brotnu sem býr á Íslandi. Samkvæmt nýjustu tölum munu vera um 30.000 íbúar hér á Íslandi af erlendu bergi brotnir. Þeir eru ýmist orðnir íslenskir ríkisborgarar eða með ákveðin leyfi til að dvelja hér, dvalarleyfi, búsetuleyfi á grundvelli atvinnuleyfa eða annarra leyfa.
Stefna íslenskra stjórnvalda í málefnum þessa fólks er afar veikluleg og þarf mikið til að hún verði með þeim hætti að ásættanlegt geti talist. Þessi ríkisstjórn hefur, að því að manni hefur virst, reynt að ná utan um málefni útlendinga með því í aðra röndina að þrengja aðgang útlendinga að landinu, þ.e. draga úr líkum þess að útlendingum fjölgi. En á hina röndina hefur allt verið galopið vegna þess að hér hefur verið rekin atvinnustefna sem kallar á það að fjöldinn allur af útlendingum komi hingað í störf sem við getum ekki mannað vegna mannfæðar af því að verkefnin sem verið er að fara í eru þeirrar náttúru að þau henta illa okkar fámenna samfélagi. Stjórnvöld bera því að stórum hluta ábyrgð á þessum málaflokki en hafa ekki staðið sig í stykkinu sem skyldi við að útbúa mannvænlega stefnu fyrir það fólk sem við hér erum að bjóða heim.
Nú hefur ríkisborgararétturinn verið svona fremur opinn eins og kom fram í máli hæstv. ráðherra. Við höfum á Alþingi á hverju ári veitt ákveðnar undanþágur frá sjö ára búsetuskilyrðinu með því að afgreiða sennilega um það bil 20 eða jafnvel á þriðja tug umsókna á hverju ári, ef ekki tvisvar á ári. Við höfum nú venjulega afgreitt þetta bæði á vorþingi og haustþingi. Við höfum með því móti heimilað fjöldanum öllum af útlendingum ríkisborgararétt þó ekki hafi verið uppfyllt hið sjö ára búsetuskilyrði eða það búsetuskilyrði sem gerð er krafa um.
Það kemur fram í greinargerð eða athugasemdum við þetta lagafrumvarp að ekki verði fram hjá því litið hversu hröð fjölgun útlendinga hefur verið á Íslandi og að það gjörbreyti aðstæðum í þessum málaflokki og kalli á yfirferð yfir ákvæði laganna. Það er auðvitað mikið rétt. En það kallar ekki bara á yfirferð yfir ákvæði laga um ríkisborgararétt. Það kallar á markvissa stefnumörkun af hálfu stjórnvalda á breiðum grunni í málefnum útlendinga. Það er þar sem þessi stjórnvöld hafa verið að draga lappirnar.
Það er tekið fram í greinargerðinni jafnframt að á öllum hinum Norðurlöndunum hafi á síðustu árum verið endurskoðuð löggjöf á þessu sviði og að þar hafi verið gerðar töluverðar breytingar. Hins vegar er ekki tekið fram í greinargerðinni hvaða breytinga er verið að vísa til, hvort sérstaklega sé verið að vísa til breytinga varðandi lagaákvæði um ríkisborgararétt eða hvort verið sé að vísa til lagabreytinga á breiðari grunni.
Það væri svo sem forvitnilegt og á ég örugglega eftir að spyrja um það og fá upplýsingar um það í allsherjarnefndina hvaða breytingar hafa verið gerðar á þessum tilteknu lögum um ríkisborgararétt á hinum Norðurlöndunum til þess að við getum áttað okkur á því hvernig við stöndum að vígi miðað við þau. Sérstaklega þekkja þeir hv. þingmenn sem átt hafa sæti í allsherjarnefnd á undanförnum árum ágætlega til málefna útlendinga enda ekki langt síðan við endurskoðuðum löggjöf um útlendinga. Um hana voru talsverðar deilur og menn geta vitnað um það að þar var ekki öllum atriðum lent í sátt, sannarlega ekki. Ég nefni til dæmis kröfuna um sjálfstæða framfærslu 18 ára einstaklinga sem hafa komið hingað til landsins til dæmis sem innflytjendur á grundvelli fjölskyldusameiningar eða einhvers annars. Ég nefni 66 ára regluna. Ég nefni 24 ára regluna. Og fleira mætti nefna sem verulegur ágreiningur ríkti um í allsherjarnefnd þegar þessi mál fóru þar í gegn.
Eins og hv. þm. Mörður Árnason sem talaði hér á undan mér sagði þá hefur sömuleiðis verið mikill ágreiningur um framkvæmd íslenskukennslunnar og um það hvernig þær kröfur eru fram settar og hvernig sú kennsla sem veitt er er útbúin og hverjum hún stendur til boða.
Auðvitað eru það lágmarkskröfur í þeim efnum að vinnandi fólki sem gefst kostur á íslenskunámi sé gefinn kostur á að leggja stund á það nám í vinnutíma, að fólk fái að minnsta kosti stóran hluta þess náms án gjaldtöku. Sömuleiðis þarf að fjölga mikið tímunum sem í boði eru. Þau námskeið sem boðið hefur verið upp á hingað til eru, ef ég man rétt, 150 klukkutímar. En í nágrannalöndum okkar, að minnsta kosti í Danmörku og Noregi, þar er boðið upp á námskeið sem eru 2.000 til 3.000 tímar. Við erum því að bjóða fólki upp á einungis lítið brotabrot af því sem nágrannalönd okkar gera. Ég held að við hljótum að verða að hafa einhver rök fyrir því hvers vegna við sinnum þessu svona illa á sama tíma og nágrannalöndin okkar gera stórátak í þessum efnum.
Íslenskukennslan er mál út af fyrir sig og hv. þm. Mörður Árnason fór í ítarlegu máli hér áðan yfir það. Ég tel ekki ástæðu til þess að endurtaka það hér en vil einungis lýsa yfir stuðningi mínum við þau meginsjónarmið sem í máli hans komu fram.
Í athugasemdum við frumvarpið er nefnt að þar séu lögð til nokkur ný skilyrði þess að veita megi íslenskt ríkisfang með stjórnvaldsákvörðun, auk þess sem hnykkt er á nokkrum skilyrðum sem í framkvæmd hafa verið virt, svo sem að umsækjandi sýni fram á hver hann er. Nú þykir mér í sjálfu sér eðlilegt þegar útlendingur kemur til landsins, og við þekkjum það í gegnum hælisleitendaumsóknirnar, að fólk þurfi að sanna deili á sér. Við vitum líka í því samfélagi sem við búum í núorðið að þeim tilfellum fjölgar að útlendingar fara um heiminn skilríkjalausir og það er ekki í öllum tilfellum vegna þess að viðkomandi ætli að villa á sér heimildir eða sigla undir fölsku flaggi vísvitandi heldur er hér oft og tíðum um fórnarlömb glæpasamtaka og glæpamanna að ræða. Fólk hefur verið þvingað til að láta persónuskilríki sín af hendi. Það hefur látið persónuskilríki sín til að greiða sér leið einhvers staðar milli landa eða til að komast frá einum stað til annars vegna þess að það hefur ekki átt annarra kosta völ ef fólk er á flótta frá ófriði eða erfiðum aðstæðum eða ótal öðrum hlutum sem fólk flýr undan í veröldinni í dag. Við viljum hafa opin landamæri og höfum þess vegna verið að reyna að auka möguleika fólks á að hreyfa sig í veröldinni. Það hefur verið ákveðin krafa um það frá atvinnurekendum vítt og breitt um jarðarkringluna að hægt sé að flytja verkafólk á milli staða. Allt þetta hefur kallað á kannski meiri fólksflutninga en góðu hófi gegnir og sömuleiðis alvarlega erfiðleika sem fylgja því að í tengslum við þessa fólksflutninga hafa myndast ólöglegar hreyfingar glæpamanna sem hafa notfært sér bágar aðstæður fólks og eins og ég segi hafa svipt fólk þeim réttindum eða frelsi sem vegabréfi fylgir.
Nú langar mig til að vita hvort upp hafa komið dæmi um það hér að veittur hafi verið ríkisborgararéttur til einstaklinga sem grunur leikur á um að sigli undir fölsku flaggi. Mér þykir undarlegt ef svo er vegna þess að í flestum tilfellum er fólk búið að vera hér ansi lengi þegar til þess kemur að það getur sótt um ríkisborgararétt. Hins vegar eru ótal dæmi um það þegar fólk kemur hér og sækir um hæli sem flóttamenn að það hafi átt erfitt með að sanna persónu sína eða sanna að það sé það sem það segist vera.
Það hlýtur að vera eðlilegt að við stjórnarandstæðingar í þinginu rukkum ríkisstjórnina um stefnu í þessum málaflokki. Seinagangur hefur ríkt í kerfinu við að greiða úr vandræðum þeim sem upp hafa komið hjá þeim útlendingum sem hafa leitað á náðir kerfisins. Við höfum upplifað slóðaskap í afgreiðslu mála er varða útlendinga í kerfinu. Það skortir á að meðferð mála sem hafa til dæmis rekið á fjörur okkar þingmanna sem varða — ég vil nefna hælisumsóknirnar og sömuleiðis erfiðleika sem koma upp hjá starfsfólki sem telur á sér brotið af atvinnurekendum — það hefur skort upp á að mál þessa fólks hafi fengið nægilega vandaða meðferð í kerfinu. Ég held að það sé okkur öllum lexía að hér þurfi að taka til hendinni og skoða hlutina heildstætt og ofan í kjölinn.
Þetta mál gefur tilefni til að farið sé ofan í saumana á hlutum hér á breiðari grunni en kannski orðanna hljóðan gefur til kynna. Ég sé ekki annað en að yfirlýsing hæstv. ráðherra um að stórbæta þurfi framboð af íslenskukennslu fyrir útlendinga þurfi ákveðinnar skoðunar við. Það væri svo sem ekki úr vegi áður en þessari umræðu er lokið að hæstv. ráðherra skýri það betur fyrir þingheimi hvað hann meinar með þeirri fullyrðingu að stórbæta þurfi þetta framboð. Nú vitum við að það framboð sem hefur verið til staðar hefur að mörgu leyti verið ágætt. Það hefur verið tekið verulega á í þessum málum og ég tala nú ekki um með nýjum fjármunum, þá eru þeir sem hafa verið að bjóða íslenskukennslu enn betur í stakk búnir til að bjóða gott námsefni og fara í þá vinnu sem þarf til að útbúa nýtt námsefni. Mögulegt er að við þurfum að fara í rannsóknarvinnu í þessum efnum því eins og getið hefur verið um hér þá höfum við ekki mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað tungumál. Ég held að það þurfi ákveðnar kennslurannsóknir til þess að tryggja að vel sé að verki staðið í þeim efnum.
Eins og ég segi þá er ekki nóg að fullyrða það hér að stórbæta þurfi framboðið af íslenskukennslunni. Það þarf að stórbæta möguleika útlendinga á því að læra íslensku. Það eru ýmsar leiðir til þess, meðal annars þær að heimila fólki að læra íslensku í vinnutímanum og sömuleiðis, það sem ég tel vera grundvallaratriði, að fólk þurfi ekki að greiða kennsluna úr eigin vasa.
Innflytjendamálin eru mál málanna í umræðu dagsins. Verulega miklu máli skiptir að héðan af Alþingi komi þess vegna skilaboð sem gefa það til kynna að við viljum breyta í þessum málaflokki, að við viljum tryggja stöðu þess fólks sem hingað leitar. Ég tel að að allsherjarnefnd hafi ærið verkefni fyrir höndum við að skoða það frumvarp sem hér hefur verið mælt fyrir.