133. löggjafarþing — 57. fundur,  22. jan. 2007.

íslenskur ríkisborgararéttur.

464. mál
[16:51]
Hlusta

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Ég þakka þær umræður sem hér hafa farið fram. Ég tel að tæpt hafi verið á þeim atriðum sem sérstaklega eru til umhugsunar fyrir allsherjarnefnd. Þar ber hæst íslenskuþáttinn, þ.e. íslenskukennsluna. Auk þess vil ég árétta það sem ég sagði í ræðu minni, að nefndin ætti líka að fjalla um tvöfalda ríkisborgararéttinn. Þeir hv. þingmenn sem hér hafa talað hafa ekki komið inn á það atriði. En ég hvet nefndina eindregið til að fjalla um það og taka afstöðu til þess í umfjöllun sinni.

Ég þarf ekki að tíunda fyrir hv. þingmönnum hvaða breytingar hafa orðið á þjóðfélaginu á undanförnum árum. Um síðustu áramót bjuggu líklega hér á landi um 20.000 manns með erlent ríkisfang. Við sjáum af þeim tölum sem við birtum hér í fylgiskjali með frumvarpinu hvernig kúrfan hefur hækkað jafnt og þétt og fleiri og fleiri sækjast eftir því að gerast íslenskir ríkisborgarar. Ekki er ég andvígur því og ég skrifa undir mörg hundruð slík ríkisborgarabréf á hverju ári.

En ég tel nauðsynlegt að reglurnar séu skýrar. Þótt ég svari hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni strax set ég ekki nein þau mörk að Alþingi geti ekki sjálft ákveðið með lögum að taka á móti einstaklingum á þeim grundvelli sem þingið ákveður. Fyrst og fremst er um það að ræða að þegar dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneytið tekur slíkar ákvarðanir þá séu mörkin skýr og leikreglur settar af Alþingi sem auðveldi að afgreiða þessi mál og skapi þannig betri grunn fyrir þær afgreiðslur, sem fjölgar svo mikið sem raun ber vitni.

Varðandi íslenskukennsluna var gefin út ítarleg fréttatilkynning af menntamálaráðuneytinu 10. nóvember síðastliðinn. Þar segir, með leyfi forseta:

„Stofnað verði til sérstaks verkefnis um íslenskukennslu fyrir útlendinga með verkefnisstjórn sem í sitji fulltrúar menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra. Markmið verkefnisins verði að koma íslenskukennslu fyrir útlendinga í það horf sem vel verði við unað. Á næstu þremur árum verði lögð áhersla á 200 tíma nám sem mætir þörfum byrjenda í íslensku, óháð bakgrunni þeirra. Í framhaldi af því verði stefnt að því að byggja ofan á þetta námsframboð svo öllum þeim sem hér setjast að verði gert kleift að öðlast nokkra færni í íslensku. Menntamálaráðuneyti hafi yfirumsjón með og beri ábyrgð á þeirri íslenskukennslu fyrir útlendinga sem greidd yrði úr ríkissjóði.“

Einnig var gefin út yfirlýsing um að 100 millj. kr. yrði varið á þessu ári til að sinna þessu verkefni og það birtist auglýsing núna 12. janúar síðastliðinn þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til að sinna þessu verkefni. Þar segir, með leyfi forseta:

„Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar. Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku, og eru á fyrirtækjaskrá, geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að hafa samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna.“

Í greinargerð með frumvarpinu segir að varðandi íslenskukennsluna sé lagt til að gildistöku ákvæða er lúta íslenskukunnáttu verði frestað í tvö ár svo svigrúm gefist til að byggja upp íslenskukennsluna. Reynsla nágrannaþjóða okkar sýnir að aðlögun innflytjenda að samfélaginu er á meðal brýnustu úrlausnarefna hvers ríkis þegar jafnstórfelldir fólksflutningar verða til landsins og orðið hafa undanfarin ár.

Kunnátta í tungumálinu er mikilvægasti lykillinn að þessari aðlögun. Hafa Danir og Finnar þegar lögfest ákvæði um stöðupróf í viðkomandi tungumálum en Norðmenn hafa farið þá leið að gera kröfu um þátttöku í 300 tíma norskunámi. Taka Danir auk þessa próf í danskri sögu og samfélagsfræðum fyrir umsækjendur.

Í þessari yfirlýsingu eða fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir um prófin, með leyfi forseta:

„Vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um íslenskan ríkisborgararétt er jafnframt nauðsynlegt að koma á fót stöðuprófum í íslensku, í þeim tilgangi að gefa umsækjendum um ríkisborgararétt kost á að sýna fram á lágmarkskunnáttu í íslensku. Áhersla verði lögð á færni í almennum samskiptum og við það miðað að til að standast prófið þurfi ámóta kunnáttu og til að standast grunnskólapróf í ensku eða dönsku. Nauðsynlegt er að próf verði haldin a.m.k. tvisvar sinnum á ári.“

Þarna er ákveðin viðmiðun en þetta hefur ekki verið ákveðið enn. Menn ætla að gefa sér tvö ár til að ákveða þetta. Varðandi stefnu mína í þessu máli þá hef ég komið að þessu um langt árabil, fyrst sem menntamálaráðherra og nú sem dómsmálaráðherra. Ég tel að vel sé að þessu verki unnið af mörgum aðilum. Við höfum séð þá grósku sem er á þessu sviði og hvernig menn hafa leitast við að svara aukinni eftirspurn, bæði á netinu og með alls konar tilboðum og ferðalögum um land allt og námsefni á margvíslegum grunni. Það er mikið framboð og þetta þarf allt að sameina. Það verður náttúrlega tekið mið af því hvaða kröfur eru gerðar. Við að öðlast ríkisborgararéttinn fá menn kannski nýtt viðmið varðandi þær kröfur sem gerðar eru í þessu efni. Það er því mikilvægt að þetta sé vel undirbúið.

Af hálfu dómsmálaráðuneytisins, menntamálaráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins hefur verið leitað til Kennaraháskóla Íslands í þessu efni til að fá leiðbeiningar og leiðsögn. Þetta er því ekki sagt þannig að menn standi einhvers staðar á byrjunarreit í þessu máli. Þvert á móti hefur þetta verið ítarlega rætt og mikið um þetta fjallað.

Mín skoðun er sú að þetta nám eigi að vera ókeypis fyrir viðkomandi. Ég tel að það sé, ef ég má orða það svo, hæfilegur og besti fórnarkostnaðurinn sem íslenska þjóðfélagið leggur af mörkum til þess að opna aðgang að samfélagi okkar, að kostnaður við þetta nám sé greiddur af ríkissjóði fyrir þá sem vilja stunda, t.d. með það að markmiði að standa að stöðuprófum um íslenskan ríkisborgararétt.

Ég tel hins vegar að þeir sem gangast undir það að stunda námið eigi að greiða ákveðið þátttökugjald, staðfestingargjald eða innritunargjald, eða hvað sem við köllum það. En meginreglan ætti að vera sú að staðið sé undir kostnaðinum af hálfu ríkissjóðs. Þetta er skoðun mín sem ég hef mótað mér og hef kynnt á fundum þar sem ég hef rætt um þessi mál. Ég þakka fyrir það tækifæri að fá að kynna þessa skoðun mína hér. Ég tel að skilgreina eigi þennan þátt í þessu dæmi þannig að námið sé á kostnað ríkissjóðs en þeir sem hefja námið þurfi að greiða innritunar- eða staðfestingargjald sem sýni og staðfesti áhuga þeirra á því að stunda námið.

Við verðum náttúrlega að tryggja að hæfir aðilar bjóði upp á námið. Það á ekki að vera í höndum ríkisins, að mínu mati. Ríkið á að skipuleggja þetta og halda utan um þetta. Það er okkar, eins og kom fram í máli hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar, að setja reglurnar, segja hvaða kröfur á að gera. En við eigum ekki að skipuleggja námið frekar heldur en að skilgreina kröfur og síðan að bjóða þær þá út og fá aðra til að standa að náminu. Þannig er mín hugmynd í þessu, svo hún sé alveg skýr. Ég tel að við höfum þessi tvö ár til að vinna að þessu. Ég hefði aldrei lagt þessa tillögu fram hér fyrir þingið nema ég væri sannfærður um að við hefðum burði til að standast þær kröfur sem við gerum til sjálfra okkar með því að samþykkja þetta frumvarp.

Hins vegar velti ég fyrir mér hvað þetta eigi að vera margir tímar. Hér er talað um 200 tíma. Í Þýskalandi eru það 600 tímar. Hvað eiga þetta að vera margir tímar sem kennt er og annað slíkt? En við eigum að ganga svona fram með þessum hætti. Við eigum að setja þessi skilyrði og við eigum að gera þessar kröfur þegar við veitum ríkisborgararétt í okkar landi samkvæmt almennum reglum sem eru settar á Alþingi auk þess sem við höfum sérreglur og Alþingi getur þá sjálft ákveðið hvort það vill taka á móti einhverjum einstaklingum án þess að þeir gangist undir þessi próf.