svar við fyrirspurn um fjárhagsstöðu RÚV.
Hæstv. forseti. Ég tel það í hæsta máta alvarlegt þegar við nú göngum til atkvæða um Ríkisútvarpið ohf., mál hæstv. menntamálaráðherra, að þá skuli nú fyrir stundu, í upphafi þessa fundar, vera loksins eftir langa mæðu og ítrekaðar óskir dreift hér svari við fyrirspurnum mínum til hæstv. ráðherra um fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins miðað við 1. desember sl. Hér er um að ræða skjal upp á 40 blaðsíður og þetta er auðvitað lýsandi dæmi um þessa málsmeðferð alla að það skuli vera boðið upp á þetta á Alþingi Íslendinga að svona skuli vera gengið frá málum þegar stjórnarandstöðunni hefur ævinlega verið meinað um að ræða þessi mál sameiginlega í tengslum við fjölmiðlamarkaðinn almennt og að skoða stöðu ríkisfjölmiðilsins á sem heildstæðastan hátt, þá er okkur gert þetta erfitt fyrir varðandi það að gera okkur grein fyrir fjárhagsstöðu Ríkisútvarpsins. Og nú á að knýja málið í atkvæðagreiðslu þegar svona er háttað. Ég vil bara lýsa vonbrigðum mínum með að vinnubrögð á Alþingi skuli vera með þeim hætti sem hér kemur í ljós.