svar við fyrirspurn um fjárhagsstöðu RÚV.
Frú forseti. Hæstv. menntamálaráðherra sakaði stjórnarandstöðuna um að vera að fela eitthvað og vera með einhverjar reykbombur í þessari umræðu.
Ég spyr á móti: Hver hefur verið að draga þingið á svari, og hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, önnur en hæstv. menntamálaráðherra? Hvers vegna er það? Vegna þess að niðurstaðan er mjög slæm fyrir menntamálaráðherra. Hún er líka slæm fyrir sérstakan trúnaðarmann menntamálaráðherra sem er skipaður útvarpsstjóri, sem virðist vera orðinn nokkurs konar útvarpsstjóri fyrir meiri hlutann á þinginu og hefur tekið afstöðu gegn okkur í minni hluta þingsins.
Þegar farið er yfir skuldirnar kemur í ljós að það hefur sigið verulega á ógæfuhliðina. Skammtímaskuldirnar eru á 19 hundrað millj. kr. og það hefur versnað síðan snillingurinn tók við sem hefur tekið afstöðu gegn okkur í stjórnarandstöðunni. Það kemur hér fram að frá 1. janúar og fram á mitt síðasta ár er tap Ríkisútvarpsins á 5. hundrað millj. kr. Það hefur versnað gífurlega. Og með þessu frumvarpi sem er að fara í atkvæðagreiðslu í þinginu og stjórnarandstaðan hefur mótmælt kröftuglega, er verið að færa þessum manni alræðisvald.
Ég spyr: Er ekki kominn upp neinn efi í huga hæstv. menntamálaráðherra að fara svona að? Ég hefði talið að svo væri. Í þokkabót á síðan að fjármagna Ríkisútvarpið með óréttlátasta skatti sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa staðið fyrir, nefskatti. Og maður spyr sig: Hvað verður næst hjá þessum flokkum? Hversu langt ætla þeir að ganga í að skapa ójöfnuð í samfélaginu? Ég spyr sjálfan mig að því. Það virðast ekki vera nokkur takmörk fyrir því hversu langt á að ganga.