133. löggjafarþing — 58. fundur,  23. jan. 2007.

Ríkisútvarpið ohf.

56. mál
[14:58]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Ég tel að með þessum lögum sé verið að stíga fyrsta skrefið að því að selja Ríkisútvarpið og það er þess vegna sem ég er á móti þessu frumvarpi og það er þess vegna sem ég segi nei.