133. löggjafarþing — 58. fundur,  23. jan. 2007.

Vatnajökulsþjóðgarður.

395. mál
[16:08]
Hlusta

Arnbjörg Sveinsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér þykir leitt ef þetta hefur virkað sem óviðfelldið andsvar. Ég óskaði eftir smáskýringu frá fulltrúa Samfylkingarinnar og hún hefur skýrt sjónarmið sitt mjög vel og ég þakka fyrir að þarna kemur fram stefna hennar í þessu máli. Ég ætlaðist alls ekki til þess að við værum að kallast á í óviðfelldnum tóni.