Vatnajökulsþjóðgarður.
Frú forseti. Hér er merkilegt mál á ferðinni, það er verið að tala um frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð. Um er að ræða mikið flæmi norðan Vatnajökuls sem ég hef sérstaklega í huga í því sambandi. Í fyrsta lagi skiptir auðvitað miklu að þeir sem ráða þjóðgarðinum lifi í sátt við það fólk sem býr á því landsvæði og að framkvæmd öll sé með þeim hætti að íbúarnir viti hvað til standi og að til þeirra sé tekið fullt tillit vegna þess að þjóðgarður án fólks, eða kannski er réttara að orða það svo að þjóðgarður sem fólk flýr sem hefur búið á því svæði rís ekki undir nafni. Þess vegna er kjarni málsins í þessu samhengi að svo sé um hnúta búið að íbúarnir treysti þeim sem eru í forsvari fyrir þjóðgarðinn. Þess vegna hygg ég að skynsamlegt sé að formenn svæðisráða þjóðgarðsins sitji í stjórn hans en þjóðgarðinum sé ekki stjórnað einvörðungu héðan frá höfuðborginni eins og hefur verið um þann þjóðgarð sem nú er í Ásbyrgi og Hljóðaklettum. Þetta skiptir mjög miklu máli, gagnkvæmt traust.
Í öðru lagi skiptir máli að umferð um þjóðgarðinn gangi fyrir sig með eðlilegum hætti. Nú er það svo að fyrir tveim árum var ákveðið í samgönguáætlun að nægilegt fé yrði lagt fram til að unnt yrði að leggja veg af hringveginum niður að Dettifossi. Allur undirbúningur þeirrar vegagerðar var unninn í mikilli og góðri samvinnu við Umhverfisstofnun, hygg ég að það heiti, og menn vissu ekki annað en vegarstæðið væri ákveðið í fullri sátt við alla aðila. Síðan kom annað í ljós og opinberar stofnanir, þ.e. Umhverfisstofnun og Landgræðslan, fóru að deila innbyrðis um það hvar vegurinn skyldi liggja. Á meðan blæddi þeim aðilum sem hafa atvinnu af ferðaþjónustu á svæðinu og meðan blæddi Norðlendingum og öðrum sem um svæðið fara og langar til að koma niður að fossinum hvenær sem er ársins af því að opinberar stofnanir fóru að deila um keisarans skegg, vegna þess að engin leið virtist til þess að Vegagerð ríkisins og sérfræðingar hennar gætu staðið þannig að málum að aðrar opinberar stofnanir gætu sætt sig við það. Kæruferlið hefur verið á þá lund og þá leið að nú er búið að tefja í hálft annað ár að vegurinn sé boðinn út og síðast þegar ég vissi lá málið hjá Skipulagsstofnun. Orðrómur er á kreiki um að Skipulagsstofnun fallist ekki á veglínuna eins og hún liggur og enn ein opinber stofnun ætli að fara að blanda sér í þetta þrátefli. Eins og ég sagði, á meðan tapar fólkið þarna fé, fyrirtæki hafa verri rekstrargrundvöll en ella og þetta er auðvitað mjög sársaukafullt ef við horfum til þess í leiðinni að af umhverfisástæðum er Kísiliðjan lögð niður sem var mikið áfall fyrir fólkið í Mývatnssveit.
Ef við síðan horfum niður til Öxarfjarðar þá liggur líka alveg ljóst fyrir að atvinnulíf þar stendur veikum fótum. Þann mikla háhita sem menn höfðu búist við að væri niðri í Öxarfirði er ekki þar að finna og af þeim sökum leggjum við áhugamenn um þjóðgarð norðan Vatnajökuls og áhugamenn um að fólk geti lifað af náttúrunni innan þjóðgarðsins og nærst á honum, ríka og mikla áherslu á að í þeirri samgönguáætlun sem lögð verður fram á næstu dögum verði tryggt að á næstu fjórum árum verði lokið vegagerð frá Dettifossi niður í Kelduhverfi. Síðast þegar samgönguáætlun var samþykkt lagði samgönguráðherra mjög mikið upp úr því að geta lokið við veginn fyrir vestan Snæfellsjökul af því að þar væri þjóðgarður, sagði að sá vegur væri ekki hótinu betri en vegurinn upp með Jökulsá á Fjöllum. Þess vegna þykist ég vita að hann hafi mikinn og góðan skilning á því að hið sama eigi við um þjóðgarð norðan Vatnajökuls eins og þjóðgarð vestan Snæfellsjökuls, að nauðsynlegt er að fólk komist um hann. Þess vegna vil ég brýna hæstv. ráðherra að sjá til þess að fólk komist um þjóðgarðinn með því að þessi vegur verði lagður.
Það er enginn vafi á því að þessi vegur er brýnasta verkefni sem nú liggur fyrir varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu á öllu landinu og um leið og maður veltir hlutum eins og þessum fyrir sér er auðvitað líka brýnt að hugsa til þess að á vinjum sem eru á þessu svæði verði komið upp GSM-sambandi. Mér er kunnugt um að þeir innan samgönguráðuneytisins eða á vegum þess sem vinna að því að útdeila peningum vegna söluandvirðis Landssímans hafa ákveðið staði þar sem rétt er að GSM-sambandi verði komið á og ég geri ráð fyrir því að t.d. Hvannalindir, allur vegurinn frá hringveginum niður að Dettifossi, ég tala ekki um stað eins og Hólmatungur eða Forvöð njóti að þessu leyti sambærilegrar þjónustu, eigum við að segja eins og t.d. sjávarströndin í Húnavatnssýslu. Það er þetta samspil fólks og náttúru sem verður að tryggja og líka að hægt verði að ganga svo frá málum að þeir sem við þjóðgarðinn vinna séu að öðru jöfnu fólk sem alið er upp á svæðinu, hvort sem við horfum til Suðurlands, Austurlands eða Norðurlands, á þarna rætur og þekkir veðráttu og náttúrufar o.s.frv., unir sér vel á þessum stöðum, er inngróið í landið. Hvarvetna mundi það þykja eftirsóknarvert. Það er enginn vafi á því.
Ég legg svo mjög upp úr þessu í sambandi við fólk og þjóðgarð vegna þess að ég hef fundið á ýmsum fyrir norðan að þeim hefur þótt sem ekki hafi verið haft nægilegt samráð við íbúana og það verður að eyða allri tortryggni milli þeirra og þjóðgarðsins.
Í annan stað hlýt ég að leggja áherslu á að þessi þjóðgarður, eins og ég hef þegar vikið að, verði annað og meira en nafnið. Auðvitað er þýðingarlaust að gefa yfirlýsingu um þjóðgarð ef ekki er hægt að komast um hann og auk þess er nauðsynlegt að byggja upp aðra þjónustustarfsemi innan þjóðgarðsins og ætla fé til þess. Ég vil í því sambandi, hæstv. umhverfisráðherra, sérstaklega gera Dettifoss að umræðuefni. Það er t.d. skemmtilegt að koma að Gullfossi og sjá hversu góð aðstaða er þar fyrir ferðamenn, hreinlætisaðstaða og annað því um líkt. Ég hygg að óhjákvæmilegt sé um leið og Alþingi fær þetta frumvarp til meðferðar að athuga sérstaklega þau erindi eða þann áhuga heimamanna sem uppi er um að reisa hreinlætisaðstöðu, vatnssalerni og annað sem því fylgir, við Dettifoss og raunar víðar á þessum slóðum, við Dimmuborgir, hveraröndina og jafnvel enn víðar, þótt það þyrfti ekki að gera á öllum stöðum samtímis, en ætla að koma til móts við þetta fólk við uppbyggingu slíkra þjónustumiðstöðva ef það sjálft býðst til þess að standa undir rekstrinum og láta hann standa undir sér. Þetta er einnig mjög þýðingarmikið, að koma þeim þáttum að.
Ég vil svo í þriðja lagi segja að ég er ásamt ýmsum öðrum flutningsmaður að þingsályktunartillögu um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum, að slík friðlýsing taki til alls vatnasviðs Jökulsárinnar. Mér finnst þetta sjálfsagt en þetta þýðir auðvitað ekki að við eigum ekki að vera vakandi fyrir því að þær merkilegu náttúrumenjar og vinjar sem eru á þessum slóðum geti staðist hlaup í ánni ef til þeirra kemur. Nú er ég sérstaklega að tala um Herðubreiðarlindir en ég hygg að sá varnargarður sem þar var settur upp fyrir nokkrum árum sé ekki nægilega traustur og þurfi að huga betur að því. Ég hygg einnig að óhjákvæmilegt sé að velta því fyrir sér t.d. niðri í Kelduhverfi hvort ekki sé nauðsynlegt að tryggja þá varnargarða sem þar eru með Jökulsánni því að Vatnajökulsþjóðgarður í þessum skilningi hlýtur að ná alveg niður í Öxarfjörð í hugum manna. Ásbyrgi er auðvitað niðri í Kelduhverfi, og ýmsir aðrir staðir, og við sem viljum halda þessum merkilegu stöðum sem mest friðuðum hugsum um svæðið alveg niður til hafsins.
Ég hef í sjálfu sér ekki meira um þetta að segja. Ég hygg að flestir Íslendingar séu sammála um að þessi öræfi eigi að fá að halda sér eins og þau eru. Ekki kemur til greina að breyta farvegi Kreppu og færa hana til Austurlands eins og suma hefur dreymt, það kemur auðvitað ekki til greina. En á hinn bóginn er nauðsynlegt í þessum þjóðgarði eins og öðrum að fólk geti komist um hann með auðveldum hætti því að reynslan sýnir að ef vel er frá stígum og vegslóðum gengið og þeir tryggilega merktir, ég tala ekki um ef hægt er að byggja þá eitthvað upp, þá kemur það í veg fyrir að ekið sé utan vegslóðanna.
Að síðustu hygg ég að ég þurfi ekki að taka það fram að nauðsynlegt er að huga mjög að því hvort ekki sé kominn tími til, ekki aðeins í þessum þjóðgarði heldur víðar um landið að friða sérstök svæði þar sem eru kaldavermsl eða volgrur þannig að menn geti ekki hvar sem er gengið að andastofninum vísum og skotið þessa fallegu fugla þegar fer að skyggja. Ég er mikill áhugamaður um að friða endurnar, frá áramótum skulum við segja, það er ástæðulaust annað en láta þær í friði þegar fer að birta. Helst vildi ég friða endur allt árið um kring en ég veit að ég næ því ekki fram og ég vil biðja hæstv. umhverfisráðherra að hugsa hlýtt til andanna.