Vatnajökulsþjóðgarður.
Hæstv. forseti. Mér var svona létt misboðið þegar hv. þingmaður hélt því fram að við sjálfstæðismenn, en það mátti skilja af máli hennar að við, einkum þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, værum eitthvað sérstaklega að hnotabítast út í stofnanir umhverfisráðuneytisins. Ég get bara ekki fundið það í hjarta mínu að ég hafi gert það á nokkurn hátt.
Þess má jafnframt geta, af því að Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn kom til umræðu, að í tíð þess þingmanns sem nú situr á forsetastóli, Sigríðar Önnu Þórðardóttur, sem umhverfisráðherra Sjálfstæðisflokksins, voru fjárveitingar til Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn auknar mjög. Ég vildi bara nefna það hér af því að ég get ómögulega skilið það þegar hv. þingmaður reynir að koma því inn í umræðuna að við sjálfstæðismenn séum eitthvað sérstaklega á móti opinberum stofnunum umhverfisráðuneytisins. Það á bara ekki við.
Svo það sé tiltekið sem er í frumvarpinu þá er alveg rétt að verið er að stofna sérstaka ríkisstofnun um Vatnajökulsþjóðgarð. Þannig er það en tekið er fram í frumvarpinu að hafa á mjög mikið samráð við stofnanir umhverfisráðuneytisins, m.a. við gerð verndaráætlana og margs annars sem þar er tiltekið að hafa eigi mikið samráð um á milli stofnana þess ráðuneytis.
Ég get því ómögulega skilið hvað hv. þingmaður á við og það væri kannski fróðlegt að fá frekari skýringar á því þegar er verið (Forseti hringir.) að hlutgera þetta svona.