133. löggjafarþing — 59. fundur,  24. jan. 2007.

viðhald þjóðvega.

332. mál
[11:12]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Anna Kristín Gunnarsdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Sú ábending sem hv. þm. Jóhann Ársælsson kom með og fiskaði út úr svari hæstv. ráðherra er hárrétt. Viðhaldsfé til vega hefur verið allt of lítið undanfarin ár enda sér maður það þegar maður lítur yfir tölurnar hversu lítið þær hækka og hversu lágar þær hafa verið undanfarið þrátt fyrir að umferðin hafi aukist jafnmikið og ég rakti áðan.

Hæstv. ráðherra taldi upp háar fjárhæðir sem ættu að fara til viðhalds vega á næstu árum á því tímabili sem hann hefur væntanlega látið af störfum sem samgönguráðherra. Það mun því verða hlutverk nýs ráðherra að sjá til þess að viðhaldsfé verði eðlilegt og nokkurn veginn í samræmi við þarfir. En samkvæmt því sem samtök verslunar og þjónustu hafa áætlað mun endurbygging á vegakerfinu, hringveginum um Ísland, kosta milli 10 og 20 milljarða. Endurbygging og viðhald vega eru því framkvæmdir sem munu gleypa afskaplega mikið fjármagn á næstu árum auk þess sem stórir hlutar landsins eru enn þá á frumstigi í vegamálum eins og hæstv. samgönguráðherra er auðvitað kunnugt um þar sem stór hluti þess svæðis er í hans kjördæmi, þ.e. á Vestfjörðunum.