sameining Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands.
Frú forseti. Þetta var að mörgu leyti snjöll ræða hjá hv. þingmanni og þá sérstaklega varðandi kennaramenntunina og ekki er verið að taka þetta út úr mér með einhverjum töngum. Ég vil benda hv. þingmanni á að ég skipaði hóp til þess að fara sérstaklega yfir framtíð kennaramenntunar og hann skilaði niðurstöðum sínum. Það er sérstaklega kveðið á um þetta í tíu skrefa samkomulaginu við Kennarasambandið og liður í að ná þessu er einmitt þetta frumvarp sem við erum að ræða í dag. Það er einmitt liður í því að efla undirstöðu kennaramenntunar, styrkja kennaramenntunina þannig að við getum talað um að fara í það að lengja kennaramenntun.
Ég tek undir með hv. þingmanni þegar hann ræðir um meistaragráðuna, það er markmið sem við eigum að setja okkur, að kennarar hafi meistaragráðu líka til þess að kenna, en það er ekki sama hvernig innihaldið er. Við þurfum að ræða það og þá vinnu þarf að vinna þannig að menn hafi það alveg á hreinu að það er vilji til þess. Það er stefnt að því að lengja kennaramenntunina en ekki bara hvernig sem er.
Ég er sammála hv. þingmanni — svo hann heyri það aftur — að við eigum að stefna að því að kennarar hafi meistaragráðu þegar menn eru að kenna í grunnskólum landsins líkt og Finnar hafa gert. Finnar hafa gert ýmsa hluti, þeir hafa skólakerfið með öðrum hætti og þeir hafa staðið sig frábærlega í öllum þeim könnunum sem eru settar fram í samanburði við önnur lönd og við lítum að sjálfsögðu til þess.
Hluti af því til að efla skólakerfið er mál sem við ræðum á eftir, en það varðar námsgögn og eflingu námsgagnagerðar, þar sem við ætlum að stórefla námsgagnagerð í landinu. Við munum bæta við 100 milljónum á fjárlögum þessa árs sérstaklega til námsgagnagerðar til þess að sjálfstæðir aðilar geti komið með aukið framboð eða sett fram námsgögn sín svo að skólarnir, skólameistarar og kennarar, geti valið úr enn frekari flóru námsgagna. Allt er þetta til að stuðla að eflingu skólakerfisins.
Verið er að tala um að við eigum að fara inn í nýtt skeið hátækni og hugvits. Það skeið er löngu hafið. Ég kom inn á það í máli mínu áðan að ekki hefði verið hægt að efla fjármálastarfsemina svona mikið sem raun ber vitni nema við hefðum undirbúið grunninn, þ.e. háskólamenntun í landinu, menntakerfið í landinu. Það er grundvöllurinn að því að við gátum farið í þá stórsókn á öðru atvinnusviði en einblínt hefur verið á í gegnum tíðina, í fyrsta lagi sjávarútveginn, síðan stóriðjuna og fleiri atvinnuvegi sem við höfum verið að fjárfesta í. Við höfum verið að fjárfesta í menntuninni sem hefur leitt til þess að stoðir atvinnulífsins eru mun fjölbreyttari í dag en nokkurn tíma áður.
Ég fagna því sérstaklega að Samfylkingin skuli fagna samningnum við Háskóla Íslands og skuli ekki telja hann vera neina meðalmennsku. Ég tel hann vera lykilinn að því að við getum séð fram á öflugan Háskóla Íslands, alhliða háskóla, sem getur haldið áfram að standa sig og sækja fram á sviði rannsókna og vísinda. Síðan er verið að tala um að það sé ekki nema brotabrot af því sem felst í samningnum á þessu ári. Það eru stórar fjárhæðir, 313 milljónir eru stór hluti af þeim fjárhæðum sem fara í þetta.
En það er ekki tilviljun að aukningin verður síðan árið 2008. Af hverju? Af því að þá eru menn komnir lengra, (Gripið fram í.) þá eru menn nefnilega komnir lengra. Fyrir það fyrsta verða menn að hafa það hugfast að lögbundið var að gera slíkan samning. Það væri frekar hægt að gagnrýna mig fyrir af hverju hann er til fimm ára. Af hverju var hann ekki bara gerður til þriggja ára? Ég hef sagt að ég vilji hafa hann til fimm ára af því að mikilvægt er að háskólinn fari inn í 100 ára afmælisárið með öruggan og traustan grundvöll og samningurinn er það. Ég taldi það mikilvægt. Menn geta bara gagnrýnt mig fyrir það, gott og vel, ég tek þeirri gagnrýni.
Af hverju er aukningin árið 2008? Jú, þá er líklegt að samkvæmt samningnum verði einmitt þetta skólafyrirkomulag komið í gegn, þá verði umbreytingin á skipulagi háskólans komin í gegn, árið 2008. Ekki nóg með það að skólafyrirkomulagið verði komið í gegn heldur ekki síður hitt að þá verði þessi sameining, ef að líkum lætur og menn geta ráðið í orð hv. þingmanna, orðin að raunveruleika og hún tekur gildi 1. júlí 2008. (Forseti hringir.) Það er því ekki bara verið að — ég er í ræðu, ég var ekki í andsvari.
(Forseti (JóhS): Þetta er þriðja ræða ráðherrans og þá hefur hæstv. ráðherra bara fimm mínútur.)
Já. Ég vil ítreka að við erum að taka tillit til þeirra markmiða (Forseti hringir.) sem eru sett fram í samningnum og þess vegna eru fjárhæðirnar hafðar eins og þær eru.