133. löggjafarþing — 60. fundur,  25. jan. 2007.

sameining Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands.

431. mál
[14:46]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst merkilegt ef Samfylkingin ætlar ekki að styðja við þetta frumvarp um sameiningu Kennaraháskólans og Háskóla Íslands út frá einhverjum forsendum sem er erfitt að gefa sér aðrar en þær að menn viti af því að verið er að vinna að því að lengja kennaranám í landinu. Það er alveg á hreinu að það er verið að vinna að því svo ég segi það enn og aftur.

Varðandi atriðið sem hv. þingmaður kom inn á áðan og nefndi daður. Daður getur verið með ýmsum hætti. Það er alveg ljóst að Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands eru ekki að daðra hvor við annan heldur er samvinna þeirra fyrst og fremst fólgin í því að reyna að vinna betur saman á ákveðnum sviðum.

Ég tel það mjög til fyrirmyndar að nemendur geti farið á milli háskólanna og metið gráðurnar þarna á milli en um leið sagði ég líka áðan að það er samkeppni á milli þessara skóla og hún er mikilvæg. Það er ekkert uppi á borðinu um að við ætlum að fara að sameina þessa skóla. Það er bara hugmyndaflug hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar sem getur oft verið mjög frjótt og mjög skemmtilegt, en í þessu tilviki er það ekki rétt.

Lykillinn að því að við höfum náð þessu takmarki — en ég og hv. þingmaður erum sammála um að hafa sjálfstæða skóla, hafa fjölbreytni í háskólasamstarfinu sem aðrir þingmenn Samfylkingarinnar hafa ekki alltaf verið sammála um — er að framlög fylgi með nemanda, sama hvort þeir fara í sjálfstæða háskóla eða í ríkisháskóla. Þá erum við komin að þeim yfirlýsingum sem hv. þingmenn Samfylkingarinnar, sérstaklega, hafa gefið í gegnum tíðina að það beri að endurskoða það og lækka framlögin til einkaskólanna. Það var til að mynda sagt á fundi formanns Samfylkingarinnar í Bifröst á sínum tíma.