133. löggjafarþing — 60. fundur,  25. jan. 2007.

æskulýðslög.

409. mál
[16:01]
Hlusta

Ásta Möller (S):

Virðulegi forseti. Í máli hv. þingmanns Marðar Árnasonar kom fram spurning um XXII. kafla almennra hegningarlaga og sérstaklega var fjallað um vændi í því sambandi og það að stúlkum sem hafa stundað vændi væri ekki heimilt að starfa með æskulýðsfélögum.

En eins og hv. þingmanni er kunnugt þá liggur fyrir hinu háa Alþingi breyting á lögum er varða vændi þannig að vændi til framfærslu þess sem það stundar verður ekki refsivert. Ef við horfum síðan til fortíðar þá er í þessum kafla vísað til þeirra sem hafa hlotið dóm vegna hegningarlagabrota. Mér er ekki kunnugt um að einstaklingur hafi hlotið dóm vegna vændis hér á landi nema í einu tilviki. Ég á ekki von á því að þetta muni þvælast fyrir nokkrum í þessum efnum. Þó segir vissulega einhvers staðar í frumvarpinu, í greinargerðinni kannski, að hægt þurfi að vera að gera ákveðnar kröfur til þeirra sem ráðast til starfa meðal barna um siðferðislega vitund og siðlega hegðun. Ég held að það eigi að vera þá til grundvallar ráðningu starfsmanna burt séð þá frá því hvaða dóm þeir hafa fengið.

Varðandi það að sagan sem ég las sé eina skjalfesta sagan sem hefur verið dregin fram til merkis um að einstaklingar sem hafa stundað sölu á ávana- og fíkniefnum eða neyslu sæki sérstaklega í börn og ungmenni í æskulýðsstarfi, þá voru (Forseti hringir.) mörg slík dæmi nefnd í nefndinni.