landsþing Frjálslynda flokksins og stefna í innflytjendamálum.
Herra forseti. Hv. þm. Guðjón Ólafur Jónsson þarf ekki að fara villur neins vegar að því er varðar stefnu Samfylkingarinnar í innflytjendamálum. Stefna Samfylkingarinnar var lögð fram í formi þingsályktunartillögu fyrir örfáum dögum. Áhugi framsóknarmanna á því máli og stefnu Samfylkingarinnar í málaflokknum var ekki meiri en svo að nákvæmlega enginn þingmaður Framsóknarflokksins var viðstaddur. Þó hafði verið farið sérstaklega fram á það af flutningsmanni, hv. þm. Guðrúnu Ögmundsdóttur, að hæstv. félagsmálaráðherra Magnús Stefánsson yrði hér. En Framsóknarflokkurinn sýndi málaflokknum svo litla virðingu og svo lítinn áhuga að þegar stjórnmálaflokkur leggur fram stefnu sína um þetta skilar Framsóknarflokkurinn auðu, hann segir pass. Hann hopar af hólmi og lætur ekki sjá sig.
Frú forseti. Ég vil hins vegar taka af allan vafa í þessu máli. Ég kom hér upp í síðustu viku og fagnaði því að hæstv. félagsmálaráðherra hafði þá um morguninn fengið samþykkta stefnu í innflytjendamálum. Það tók tímann sinn, tvö ár, að ná því fram. Áhugi ríkisstjórnarinnar á málaflokknum var ekki meiri en svo. Samfylkingin fór fram á það að það mál yrði tekið til umræðu í þingsölum. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir óskaði eftir því að ríkisstjórnin legði þetta fram sem sérstakt þingmál til þess að hægt væri að rökræða stefnuna. En Framsóknarflokkinn færðist undan því. Svo kemur hann hingað og rukkar Samfylkinguna um stefnu hennar í innflytjendamálum.
Herra trúr, herra forseti. Við höfum beinlínis óskað eftir því að fá að ræða málið í þingsölum þannig að hv. þingmaður ætti ekki að koma hér og leika hlutverk frægustu persónu í leikritum Shakespeares, hirðfíflið, og láta svona. (Gripið fram í.)