fátækt barna og hagur þeirra.
Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um skiptingu ræðutíma í umræðunni. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur og talsmenn annarra flokka 8 mínútur í 1. umferð. Í 2. og 3. umferð hafa ræðumenn 4 mínútur. Í lok umræðunnar hefur skýrslubeiðandi 2 mínútur og forsætisráðherra 4 mínútur. Flokkunum er heimilt að skipta tímanum á milli ræðumanna eða flytja hann á milli umferða.
Röð flokkanna er þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstri grænir, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.