fátækt barna og hagur þeirra.
Frú forseti. Við ræðum um skýrslu hæstv. forsætisráðherra um fátækt barna á Íslandi sem er sannarlega mikilvægt málefni og mér finnst umræðurnar hér hafa verið málefnalegar og margt komið fram enda er auðvitað helsta verkefni okkar sem störfum í stjórnmálum að huga að þessum málum. Það er jú þannig að stjórnmál snúast um fólk og þau snúast um að leggja sitt af mörkum svo hver og einn fái notið sín í samfélaginu sem við eigum saman. Því felst það í starfi stjórnmálamannsins að leggja grunn að velferð fyrir sem flesta líkt og þessi ríkisstjórn hefur gert. Hvað sem menn hafa hér sett fram er það óumdeilt að kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist um nær 60% á síðustu 10 árum. Sambærilegar tölur þekkjast ekki í nágrannalöndum okkar, þar hafa þær verið á bilinu 15–20%.
Kaupmáttaraukningin, traust atvinnuuppbygging, vinnan, vöxturinn og velferðin sem heitið var hefur verið grunntónninn í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hefur gagnast öllum almenningi á Íslandi. Enn voru tekin mikilvæg skref í þágu velferðar einstaklinganna og fjölskyldnanna í landinu á síðustu dögum haustþingsins. Skattleysismörk hækkuðu um 14% um áramótin, úr 79 þús. kr. í 90 þús. kr. á mánuði, og mun það sérstaklega gagnast tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum en við þessar breytingar munu 4 þús. einstaklingar hætta að greiða skatta. Það eru þá tekjulægstu einstaklingarnir og það skiptir miklu máli.
Um áramótin lækkaði líka tekjuskattur um 1 prósentustig og hefur hann þá lækkað um 3 prósentustig á kjörtímabilinu. Þetta nýtist auðvitað öllum, ekki síst ungu fólki sem ber miklar byrðar á sama tíma og það er að ljúka námi, er að eignast börnin sín, eignast sitt fyrsta húsnæði, byrja að greiða af námslánunum, greiða leikskólagjöld og ýmislegt fleira sem fylgir því að stofna fjölskyldu og heimili. Það fer því oft þannig að þetta unga fólk vinnur mikið og hefur kannski ágætar tekjur en þarf líka að bera þessar miklu byrðar eins og ég taldi upp áðan.
Fyrir síðustu kosningar lögðum við framsóknarmenn einmitt sérstaka áherslu á þetta unga fólk og sést það í áherslum okkar á þessu kjörtímabili, eins og í lækkun tekjuskattsins, hækkun barnabótanna, hækkun vaxtabótanna og lækkun endurgreiðslubyrði námslána. Það er jú þannig, og það hefur margoft verið deilt um það á þessu þingi, að þetta hefur allt hækkað. Við getum vel rifist um einstaka útfærslu, og það er ósköp eðlilegt að það sé tekist á um það milli hv. stjórnarandstöðu og stjórnarliðanna, en við verðum samt að horfa á tölurnar í fjárlagafrumvörpunum og í þeim fjárlögum sem liggja hér fyrir og það er sannarlega raunhækkun til þessara málaflokka. Því meira sem situr eftir í buddunni þeim mun léttar anda margir eftir framlag í sameinaða sjóði okkar landsmanna sem standa svo undir menntun okkar, heilbrigðiskerfi, félagslega kerfinu, sem þrátt fyrir allt er enn á meðal þess besta sem þekkist í heiminum.
Tillögur ríkisstjórnarinnar um að lækka matarreikning heimilanna voru einnig lögfestar á dögunum og fyrir almenning í landinu þýða þessar aðgerðir 14–16% lækkun á matvælaverði og 2,7% lækkun neysluverðsvísitölu á þessu ári. Kaupmáttur heimilanna eykst því að sama skapi um 2,7%. Þetta mun koma lágtekju- og millitekjufólki sérstaklega vel svo ekki sé talað um barnmargar fjölskyldur. Þetta skiptir máli. En við verðum auðvitað að tryggja með öflugu verðlagseftirliti og öflugu aðhaldi að þessar lækkanir skili sér sannarlega í vasa þeirra sem þurfa á að halda en týnist ekki einhvers staðar á leiðinni frá haga ofan í maga. Það er verkefni okkar um þessar mundir.
Í fyrrnefndri skýrslu sem hæstv. forsætisráðherra hefur látið vinna eru vísbendingar um að 4.600 börn alist upp í fátækt á Íslandi. Það er óásættanlegt. Það er sorglegt til þess að hugsa að börn í velferðarríki eins og Íslandi líði skort. Hækkun skattleysismarkanna, hækkun barnabótanna, lækkun matarreiknings heimilanna mun nýtast þessum hópi sérstaklega, svo ég tali nú ekki um aðgerðir eins og einstök sveitarfélög eins og Reykjavíkurborg eru að fara í með því að taka upp svokölluð íþrótta- og tómstundakort sem nýtast einmitt þessum hópi vel. Í þeim hópi eru t.d. innflytjendabörn sem þetta nýtist vel. Það er nefnilega skylda okkar að tryggja að Ísland verði áfram samfélag jafnra tækifæra. Besta leiðin til þess er að einbeita okkur að börnunum okkar, umhverfi þeirra og tækifærum. Um það snúast stjórnmálin, við eigum að búa þannig um hnútana að þau geti numið fræðin á jafnréttisgrundvelli og þegar þau ljúka námi fari hver og einn út í lífið með veislu í farangrinum, eins og skáldið orðaði það, veislu þekkingar og menntunar sem opnar mönnum allar þær dyr sem hægt er að opna. Þannig gerum við æskuna, börnin okkar, frjálsari í harðnandi alþjóðlegri samkeppni á hvaða sviði sem er og þannig tryggjum við frelsi okkar sjálfra til framtíðar. Þetta gerum við með því að bjóða upp á góða menntun hvar sem menn búa, aðgengi að listnámi og íþróttum óháð efnahag og búsetu. Þannig stuðlum við, virðulegur forseti, áfram að því samfélagi jafnra tækifæra sem við höfum búið við síðustu áratugina.