133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

vatnsréttindi vegna Búrfellsvirkjunar.

415. mál
[17:13]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svarið er nei við því að mínum dómi. Ég tel ekki að þetta sé neitt sérstakt sprengiefni. Ég tel þvert á móti að þetta sé eðlileg niðurstaða í framhaldi af þeim úrskurðum sem komu frá óbyggðanefnd um þetta málefni og í eðlilegu samhengi við það sem ákveðið var 1965.