133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

vatnsréttindi vegna Búrfellsvirkjunar.

415. mál
[18:19]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmönnum fyrir málefnalega og ítarlega umræðu þetta mál. Ég tel að hér hafi komið fram margvísleg sjónarmið sem vert er að gefa gaum og sem sýna auðvitað fram á að það getur verið álitamál að fara þessa leið. Það er alveg rétt.

Vissulega er þetta í fyrsta sinn sem gerð er tillaga um það til Alþingis að afsala þjóðlendu til annars aðila þó að það sé að vísu aðili í eigu ríkisins. Það er rétt að það er ekkert ákvæði um slíkt í þjóðlendulögunum og þess vegna þarf að setja um slíkt sérstök lög. Eins og bent er á í athugasemdum við frumvarpið er ekki heimilt, samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar eða samanber ákvæði í fjárreiðulögum, að selja fasteignir ríkisins eða afnotarétt þeirra nema samkvæmt heimild í lögum.

Það er það sem verið er að gera með þessu frumvarpi, það er verið að fara fram á heimild Alþingis til slíkrar ráðstöfunar. Þess vegna er það auðvitað villandi þegar talað er um það í þessari umræðu að forsætisráðherra ákveði þetta eða hitt í sambandi við slíka ráðstöfun. Það er auðvitað Alþingi sem tekur ákvörðun um það. Það er Alþingis að vega og meta það frumvarp og þá tillögu sem hér liggur fyrir.

Mál þetta hefur sérstöðu og þess vegna tel ég ekki að það sé líklegt til að verða fordæmi gagnvart þjóðlendum að öðru leyti, framsali þjóðlendna eða hvað þá heldur sölu þjóðlendna til einkaaðila. Ég tel ekki að þetta mál hafi almennt fordæmisgildi heldur hefur það mikla sérstöðu eins og rakið er í þingskjalinu sjálfu þar sem farið er yfir sögu málsins og þeirra viðskipta sem áttu sér stað með umrætt landsvæði allt frá upphafi 20. aldar þar til ríkið afhenti Landsvirkjun það land sem hér er um að ræða með sameignarsamningi þeim sem gerður var 1965 og sem Alþingi staðfesti.

Hins vegar er það niðurstaða óbyggðanefndar, eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson rakti hér, að allar þessar ráðstafanir höfðu byggst á því sem kallað er vanheimild og að menn hefðu ekki haft yfirráðaréttinn yfir þeirri eign sem þeir voru að ráðstafa, hvorki hrepparnir á svæðinu né Titan-félagið sem fékk yfirráðin, né skáldið Einar Benediktsson sem hafði yfirráðin í millitíðinni, né ríkið sem keypti landið af Titan-félaginu, að mig minnir 1951.

Við þessari stöðu er verið að bregðast vegna þess að allt frá árinu 1965 hafa allir gengið út frá því að þetta land væri í eigu Landsvirkjunar í hefðbundinni merkingu. Að Landsvirkjun færi með beinan eignarrétt yfir þessu landi og þar með yfirráðaréttinn yfir landinu og að sjálfsögðu vatnsréttindunum sem því fylgja.

Hvað varðar verðmæti þessara réttinda vil ég svara fyrirspurn hv. þm. Marðar Árnasonar um það atriði með því að segja frá því að sú tala sem ég nefndi hér, u.þ.b. 500 millj. kr., byggist á því hvernig réttindi þessi eru bókfærð hjá Landsvirkjun. Þetta var metið á sínum tíma og síðan hefur það verið framreiknað árlega og í nýjasta ársreikningi sem liggur fyrir, og miðast við 31. desember 2005, er um að ræða u.þ.b. 504.725.000 kr. sem þetta mat byggist á. Þaðan er sú tala komin. Nýrra mat hef ég ekki eða annað við að styðjast.

Ég tel ekki að þetta mál þurfi að hafa nein áhrif á þá samkeppnisstöðu eða samkeppnisumhverfi sem uppi er á raforkumarkaðnum. Allir aðilar á þeim markaði hafa alla tíð gengið út frá því og reiknað með því að þetta land væri í eigu Landsvirkjunar. Ég tel hins vegar mikilvægt að tekinn sé af vafi í þessu efni, sérstaklega vegna viðskiptamanna Landsvirkjunar og ekki síst lánardrottna fyrirtækisins sem hafa gengið út frá því og hefur verið fullyrt við að fyrirtækið ætti þetta land. Það er meginástæðan fyrir því að ég tel þetta nauðsynlegt.

Ég bendi á að þetta frumvarp er nú lagt fram í þriðja sinn, ekki annað sinn. Síðast þegar það var lagt fram á Alþingi var það afgreitt frá allsherjarnefnd og ég man ekki betur en nefndin hafi öll lagt til að það yrði samþykkt þó svo að einhverjir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi haft fyrirvara við þá niðurstöðu. Þannig var þetta mál síðast þegar við skildum við það. Grundvallaratriðin í málinu eru óbreytt þó svo að eignarhaldið á Landsvirkjun hafi breyst. Það er mikilvægt fyrir fyrirtækið gagnvart viðskiptamönnum og sérstaklega lánardrottnum að þessi atriði séu algerlega á hreinu.