133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

vátryggingarsamningar.

387. mál
[18:53]
Hlusta

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni ákvæði í því frumvarpi sem hæstv. viðskiptaráðherra mælir fyrir sem mikið var tekist á um á 130. löggjafarþingi og fjallað um í efnahags- og viðskiptanefnd. Þá var einmitt lögð til sú heimild í því frumvarpi að vátryggingafélagi væri heimilt að afla upplýsinga um þá sjúkdóma sem vátryggingartaki, eða vátryggður, svo og foreldrar, systkini og börn vátryggða eru með eða hafa haft. Það var að vísu orðað öðruvísi í því frumvarpi en meiningin var sú sama.

Persónuvernd gerði þá mjög alvarlegar athugasemdir við þetta ákvæði og vísa ég til þess að í athugasemdum við ákvæðið kom fram að „samkvæmt þessari undanþágu má athuga heilsufar skyldmenna til að meta tilefni til þess að rannsaka fyrra eða núverandi heilsufar þess sem óskar vátryggingar. Ekki sé hins vegar heimilt að athuga heilsufar skyldmenna til að kanna arfgenga þætti en Persónuvernd telur ekki unnt að aðgreina þetta tvennt“.

Þetta var álit Persónuverndar á sínum tíma. Við tókumst mjög á um þetta hér í þingsölum og í nefndinni og reyndar var það svo að Læknafélag Íslands tók líka undir þetta. Þess vegna leikur mér forvitni á að vita, nú þegar þetta er komið hér inn í þingsali aftur, raunverulega efnislega það sama þó að orðalagið sé annað, hvort leitað hafi verið til Persónuverndar með þetta frumvarp sem hér er lagt fram og hver sé þá afstaða hennar, og eins hjá Læknafélaginu.

Ég minni á að við, nokkur sem átt höfum sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, fluttum breytingartillögu við þetta frumvarp um vátryggingarsamninga þar sem við lögðum til að ekki yrði heimilað það ákvæði sem nú er verið að taka upp, að afla upplýsinga um þá sjúkdóma sem vátryggingartaki, eða vátryggður, svo og foreldrar, systkini og börn vátryggðs eru með eða hafa haft. Nú er verið að taka þetta upp með öðru orðalagi en mig fýsir að vita álit (Forseti hringir.) Persónuverndar á þessu ákvæði svo og Læknafélagsins.