samkeppnislög.
Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hæstv. ríkisstjórn leggur fram frumvörp um breytingu á samkeppnislögum á þessu kjörtímabili heldur er þetta í annað sinn.
Í fyrra sinnið var það í kjölfar þess að samkeppnisyfirvöld tóku á ýmsum málum eins og t.d. olíusamráðsmálunum sem snertu jafnvel innstu koppa í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það kom m.a. upp úr dúrnum að Olíufélagið var í einhverju samkrulli með Framsóknarflokknum varðandi rekstur á húsnæði þannig að þetta varð viðkvæmt mál.
Í kjölfarið var felld út heimild, herra forseti, til að taka á slíku og samkeppnislögin voru veikt. Þetta var heimild til að taka á því að samkeppnisyfirvöld gætu gripið til aðgerða gegn aðstæðum sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni. Þetta var gert.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra, hvort hann hyggist koma þessu ákvæði inn á ný til að hæstv. fjármálaráðherra geti staðið við stóru orðin og tekið á meintu samkeppnisleysi eða samþjöppun á matvörumarkaðnum.
Það væri fróðlegt ef hæstv. viðskiptaráðherra gæti greint okkur frá því, vegna þess að þetta mál brennur mikið á þjóðinni, og hvort þessi skattlagning skili sér til neytenda á endanum. Hæstv. viðskiptaráðherra hlýtur að hafa svör á reiðum höndum hvað þetta varðar.