133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

samkeppnislög.

522. mál
[20:58]
Hlusta

viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessar fyrirspurnir. Þessi atriði eru einmitt til skoðunar, m.a. hjá Samkeppniseftirlitinu og hafa reyndar líka verið til umræðu í efnahagsbrotanefndinni. Ég geri ráð fyrir að þeirra umræðna sjái einmitt stað í þessum frumvörpum, því sem nú er til umræðu og því sem kemur til umræðu rétt á eftir. En öll þessi atriði eru líka sérstaklega til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.