133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

samkeppnislög.

522. mál
[21:10]
Hlusta

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta var afar athyglisverð ræða svo ekki sé meira sagt. Hv. þingmaður kemur hér upp og heldur því fram að ef samkeppnin sé virkilega að virka, ef það gerist að menn séu virkilega að ná árangri, ef þeir vinna á þann veg að það sé alveg í takt og í samræmi við allar reglur og veita neytendum aðgang að vöru á verði sem þeir ekki höfðu áður þá hafi verið hættan sú að menn ætli að ráðast á fyrirtæki og skipta því upp, að vegna þessarar stórkostlegu hættu, að samkeppnislögin séu að ná markmiði sínu, þá sé mikilvægt að fella þessa heimild úr gildi.

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort það þjóni einhverjum tilgangi að bæta nokkru í þetta. En ég held að það sé afar mikilvægt og ítreka það að samkeppnisyfirvöld hafi þau tól og tæki sem til þarf til að ná árangri og ná þeim markmiðum sem að er stefnt. Þarna voru samkeppnislög veikt svo um munar. En það var ekki gert vegna þeirrar stórkostlegu hættu sem hv. þm. Pétur Blöndal nefndi í sinni ræðu, þ.e. að ef fyrirtæki næðu svo stórkostlegum árangri að neytendur virkilega nytu þess þá væri hættan sú að menn skiptu þeim upp. Það hefur aldrei verið uppi á borðinu.