leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis.
Hæstv. forseti. Málið sem er hér til umræðu er að sumu leyti flókið. Ég áskil mér allan rétt til þess að hafa skoðanir á því þegar það kemur inn til nefndarstarfsins.
Það sem mig langar til að færa í tal núna eru breytingarnar sem lagðar eru til að verði gerðar á 8. gr. laganna en þar segir í 4. mgr., með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar sérstaklega stendur á er iðnaðarráðherra heimilt að veita leyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis án auglýsingar“
Enn fremur segir í 3. mgr. sömu greinar, með leyfi forseta:
„Við veitingu leyfis skal umsækjendum ekki mismunað og skal jafnræðis gætt. Leyfi skulu veitt á grundvelli hlutlægra viðmiðana sem gerðar hafa verið opinberar. Iðnaðarráðherra er heimilt að hafna öllum umsóknum um leyfi sem berast í kjölfar auglýsingar.“
Við að lesa þetta núna finnst mér að með þeim breytingum sem hér eru lagðar til sé verið að víkka út möguleikana á að veita leyfi án þess að málsgreinarinnar sem ég las áðan gæti nægilega, þ.e. að innihald hennar verði deyft. Ég hef áhyggjur af þessu og alveg sérstaklega í ljósi þess að í svokallaðri auðlindanefnd sem starfaði í sumar og skilaði af sér í haust, var einmitt fjallað um auðlindir í þjóðareign og hér erum við að ræða um auðlindir í þjóðareign. Þar var lögð mikil áhersla á vinnuna við það með hvaða hætti ætti að fara með slíkar auðlindir, hvernig sú stjórnsýsla ætti að vera. Þar var alveg á hreinu að það skyldi auglýsa slíkar auðlindir og það skyldi gæta fyllsta jafnræðis. Ef fleiri en einn sæktu um yrðu umsóknir t.d. metnar á grundvelli útboða. Ég tel a.m.k. að það þurfi að skoða það betur sem hér er sett fram þegar málið kemur til nefndarinnar, t.d. það sem segir í lokamálslið b-liðar 5. greinar þessa frumvarps:
„Telji Orkustofnun tvær eða fleiri umsóknir jafnhæfar að uppfylltum framangreindum skilyrðum er henni heimilt að meta umsóknir út frá öðrum skilyrðum.“
Þetta finnst mér óljóst og ég tel að þetta þurfi að skoða betur.
Síðan er lagi til að 4. mgr. verði svohljóðandi:
„Heimilt er að veita leyfi til rannsókna og vinnslu kolvetnis án auglýsingar ef svæðið sem leitað er leyfis fyrir:“
Þar eru taldir upp a-, b- og c-liður en í a-lið segir:
„er aðgengilegt til langs tíma“.
Það er sem sagt heimilt að veita leyfið án auglýsingar ef svæðið er aðgengilegt til langs tíma. Á einhverju stóru svæði sem er aðgengilegt til langs tíma er sem sagt hægt að úthluta án þess að það sé auglýst og án þess að aðilar sem eru áhugasamir um slíkar rannsóknir og vinnslu viti af því.
Þetta er ekki í samræmi við það sem ég var að segja frá áðan að hefði orðið niðurstaða í auðlindanefndinni um það hvernig ætti að fara með auðlindir í þjóðareign.
Í b-lið segir:
„hefur áður sætt málsmeðferð þar sem auglýst hefur verið en hefur ekki leitt til þess að leyfi hafi verið veitt“.
Þessi liður er líka með þeim hætti að mér finnst ástæða til að skoða hann vegna þess að hafi eitthvert svæði verið auglýst áður þá hlýtur a.m.k. að þurfa að setja einhvers konar reglu um það hve langur tími hafi liðið frá því að var auglýst, t.d. að hafi menn auglýst eitt árið og enginn áhugi verið þá, þá gengur ekki að fimm árum seinna verði leyfum úthlutað án þess að auglýsa.
Í c-lið segir:
„hefur verið gefið eftir af fyrirtæki enda fellur það ekki sjálfkrafa undir a-lið,“ sem ég las upp áðan.
Sem sagt ef eitthvert fyrirtæki sem hefur fengið úthlutað leyfi hættir við þá má úthluta leyfi til annarra án auglýsinga. Þessi atriði vil ég gera sérstakan fyrirvara um og tel ástæðu til að nefndin fari vel yfir.
Þá er eitt sem ég vil gera líka athugasemd við en í lok greinargerðarinnar segir:
„Samhliða endurskoðun laga nr. 13/2001 hefur farið fram vinna við drög að leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni. Leyfisdrögin byggjast að miklu leyti á erlendum fyrirmyndum og hefur verið litið til reynslu nágrannaþjóða okkar, svo sem Færeyinga, Norðmanna og Grænlendinga. Ljóst er að þörf er á frekari útfærslu einstakra ákvæði laga nr. 13/2001 og tekur frumvarp þetta mið af þeirri vinnu.“
Ég tel ástæðu til þess að koma því hér á framfæri að það hefði verið gott að umrædd drög hefðu fylgt með en að sjálfsögðu mun ég ganga eftir því í nefndarstarfinu að við fáum að skoða þau og sjá hvað er innifalið í þeim.
Ég er ekki að lýsa mig andvígan þessu frumvarpi, ég sé bara ástæðu til þess að nefna þau atriði sem ég hef nú farið yfir. Að öðru leyti mun ég auðvitað koma að málinu í nefndinni og vonast til að annaðhvort verði hægt að sannfæra mig um að ég hafi rangt fyrir mér, þ.e. að ákvæðin sem ég nefndi áðan samrýmist ekki þeim hugmyndum sem eru fólgnar í uppkasti að lagafrumvarpi sem auðlindanefnd skilaði frá sér í sumar en ef svo er ekki þá vonast ég eindregið til þess að nefndin kynni sér þær niðurstöður og breyti frumvarpinu með þeim hætti að það samrýmist þeim hugmyndum. Þetta tel ég vera mjög mikilvægt vegna þess að við þurfum að finna sátt um það hvernig auðlindum í þjóðareign er úthlutað til þeirra sem eiga að fá þær til nýtingar. Þar þarf að gæta fulls jafnræðis og þar þurfa allir sem áhuga hafa og vilja til þess að nýta slíkar auðlindir að fá tækifæri til þess að bjóða fram krafta sína og síðan á að meta af hlutlægni og fyrst og fremst með jafnræði í huga.