133. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2007.

leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis.

515. mál
[21:41]
Hlusta

iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka málefnalegar ábendingar hv. þm. Jóhanns Ársælssonar og veit að þessi atriði verða tekin til skoðunar í iðnaðarnefndinni. Ég tek undir þau sjónarmið sem hann túlkaði og tjáði, að það er nauðsynlegt að samræmi og samfella sé í þeim skilmálum, skilyrðum sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi og öðrum sambærilegum frumvörpum á auðlindasviði.