133. löggjafarþing — 62. fundur,  30. jan. 2007.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Birgir Ármannsson):

Að loknum atkvæðagreiðslum um sjö fyrstu dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um efnahagsmál. Málshefjandi er hv. þm. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hæstv. forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.