efnahagsmál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. frummælanda fyrir að taka hér upp mikilvægt mál, vandamál heimilanna og erfiða stöðu þeirra. Eftir að ég hef hlustað á ræðu hæstv. forsætisráðherra get ég ekki betur heyrt en að hann hafi haldið sömu ræðu og oft áður, líkt og fulltrúar ríkisstjórnarinnar gera, hann hélt fram sem markmiði góðri stöðu ríkissjóðs.
Vissulega hefur staða ríkissjóðs batnað. Skuldir hafa verið greiddar niður, en þær hafa líka verið greiddar niður með sölu ríkisfyrirtækja eins og við þekkjum öll.
Það er ekki nóg að horfa á stöðu ríkissjóðs. Það verður að horfa á skuldastöðu þjóðarinnar allrar, ríkissjóðs, viðskiptahalla þjóðarinnar, þ.e. viðskiptahalla viðskiptalífsins og heimilanna. Þá er myndin allt önnur en þegar eingöngu er litið á ríkissjóð.
Rótin að þeim mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir í dag er hulin ríkisstjórn sem heldur fyrir augun og viðurkennir ekki undirliggjandi vanda sem kemur ekki síst niður á heimilunum, liggur í stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar, í þeim þensluhvetjandi áhrifum sem stóriðjustefnan kom af stað og viðheldur. Þegar við horfum til framtíðar sjáum við að ekki mun hægja hér á því þensluástandi sem verið hefur ef ríkisstjórnin ætlar ekki að hætta við og hleypa því ekki af stað að það verði einhverjar væntingar um áframhaldandi stóriðju. Ella mun þetta þensluástand, háir vextir og erfiðleikar heimilanna verða (Forseti hringir.) viðloðandi næstu árin.